Keilan hitti strákana á leiðinni til München Tómas Þór Þórðarson í Leifsstöð skrifar 9. janúar 2019 07:00 Strákarnir okkar í Saga Lounge í morgun. vísir/tom
Strákarnir okkar í íslenska landsliðinu í handbolta flugu til München í morgun þar sem þeir hefja leik á HM 2019 í handbolta á föstudaginn en fyrsti mótherji er stórlið Króatíu. Íslenska liðið mætti eldsnemma í morgun í Leifsstöð en rútan rann að dyrum um hálf sex. Þeir nutu svo lífsins í Saga Lounge fram að flugi þar sem að þeir fengu að borða og drekka og horfðu svo á skemmtilegt myndband frá vinum og vandamönnum. Liðssmyndatakan fyrir mótið fór fram í Saga Lounge og eftir að nokkrar myndir voru teknar kallaði einhver: "Hvar er keilan?" og vísaði til keilunnar frægu sem laumaðist á mynd með íslenska fótboltalandsliðinu fyrir EM 2016. Hún varð svo fræg að hún fékk sitt eigið sæti í fluginu á HM 2018. Keilan var að sjálfsögðu á staðnum og var skellt fyrir framan strákana þar sem að hún tók sig vel út með íslenska liðinu. Strákarnir lenda um hádegisbil í München og æfa svo síðdegis í keppnishöllinni en fyrsti leikur er sem fyrr segir á föstudaginn á móti Króatíu. Vísir er með í för og mun flytja ykkur fréttir allt mótið.
HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fótbolti Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Fótbolti Argentína - Egyptaland | Messi gegn Salah Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Skoraði á HM en nær ekki að spila í Fossvogi Fótbolti Fleiri fréttir Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Sjá meira