Úrgangur jókst á nýliðnu ári Nadine Guðrún Yaghi skrifar 5. janúar 2019 19:00
Á nýliðnu ári barst Sorpu 12 prósent meira magn af úrgangi en árið á undan. Mest var aukningin í úrgangi er tengist framkvæmdum. Frá 2014 hefur magn úrgangs nú aukist um hundrað þúsund tonn. Þetta sýna fyrstu tölur Sorpu yfir heildarúrgang á nýliðnu ári. „Það hefur aukist mikið í byggingarúrgangi. Eins og til dæmis litað timbur sem er mælikvarði á framkvæmdir. Hann hefur aukist. Bylgjupappi hefur aukist líka. Það er mælikvarði á innflutning utan af tækjum og tólum og húsgögnum og svo það sem fólk er að panta á netinu en það kemur mikið af því í pappa,“ segir Björn Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu. Hann segir að árið 2014 hafi verið ákveðinn vendipunktur hvað magn úrgangs varðar. „Þá byrjaði úrgangur að aukast fyrst almennilega eftir hrunið og frá þeim tíma hefur magnið sem Sorpa tekur við aukist um sextíu og tvö prósent eða um hundrað þúsund tonn,“ segir Björn. Þannig hefur heildarmagn úrgangs til Sorpu farið úr rúmum 160.000 tonnum í 260.000 tonn á tímabilinu 2014 til dagsins í dag. Björn segir góðu fréttirnar vera þær að þrátt fyrir aukið magn úrgangs í heildina árið 2018 hafi heimilisúrgangur frá íbúum dregist saman. „Til dæmis úrgangur úr gráu tunnunni, hann hefur dregist saman um 3,7 prósent á milli ára sem bendir þá til þess að fólk sé frekar að flokka,“ segir Björn Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu.
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira