Kristján með fleiri sigra en allir hinir íslensku þjálfararnir til samans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. janúar 2019 23:00 Kristján Andrésson og strákarnir hans í sænska landsliðinu hafa unnið alla sex leiki sína á HM í handbolta til þessa. EPA/JUANJO MARTIN
Kristján Andrésson hefur stýrt Svíum til sigurs í öllum sex leikjunum á HM í handbolta en Svíar unnu tólf marka sigur á Túnis í fyrsta leik sínum í milliriðli í dag. Þetta þýðir að Kristján er núna með fleiri sigra á þessu heimsmeistaramóti en allir hinir fjórir íslensku þjálfararnir til samans. Kristján er með sex sigurleiki en hinir fjórir, Guðmundur Guðmundsson (3 sigrar), Aron Kristjánsson (1 sigur), Patrekur Jóhannsson (1 sigur) og Dagur Sigurðsson (0 sigrar) hafa aðeins náð að vinna fimm leiki samanlagt. Ísland tapaði 24-19 á móti Þýskalandi í fyrsta leik sínum í milliriðli og allir þrír íslensku þjálfararnir í Forsetabikarnum töpuðu í dag. Patrekur Jóhannsson og lærisveinar í Austurríki töpuðu 24-22 á móti Argentínu, Aron Kristjánsson og strákarnir hans í Barein töpuðu 32-27 á móti Serbíu og Japanar, undir stjórn Dags Sigurðssonar, töpuðu sínum sjötta leik í röð, nú 27-25 á móti Kóreu. Svíar unnu leiki sína í riðlinum en þeir voru á móti Egyptalandi (+3, 27-24), Argentínu (+15, 31-16), Angóla (+18, 37-19), Katar (+1, 23-22) og Ungverjalandi (+3, 33-30). Liðið vann síðan 35-23 sigur á Túnis í dag. Svíar hafa þar með unnið þessa sex leiki sína með samtals 52 marka mun. Markatalan hjá hinum fjórum íslensku þjálfurunum á heimsmeistaramótinu er hins vegar -147 en Guðmundur Guðmundsson (+8) er sá eini af hinum fjórum sem er í plús. Kristján og Svíar hvíla á morgun en hinir fjórir íslensku þjálfararnir verða í eldlínunni. Ísland mætir Frakklandi í milliriðli, Austurríki mætir Barein í leiknum um 19. sæti og Japan spilað við Angóla um 23. sætið. Það detta því vonandi inn fleiri sigrar hjá íslensku þjálfurunum á morgun.Íslensku þjálfararnir á HM í handbolta 2019:Kristján Andrésson, Svíþjóð 6 sigrar í 6 leikjum (Markatalan +52)Hinir fjórir íslensku þjálfararnir 5 sigrar í 24 leikjum (Markatalan -147)Guðmundur Guðmundsson, Íslandi 3 sigrar í 6 leikjum (Markatalan +8)+Patrekur Jóhannsson, Austurríki 1 sigur í 6 leikjum (Markatalan -29)+Aron Kristjánsson, Barein 1 sigur í 6 leikjum (Markatalan -49)+Dagur Sigurðsson, Japan 0 sigrar í 6 leikjum (Markatalan -28)
HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Fleiri fréttir Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram Sjá meira