Danir skiptu Íslendingi út fyrir Færeying á HM í handbolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2019 11:45 Jóhan Hansen er byrjaður að skora fyrir danska landsliðið á HM í handbolta. Getty/Jan Christensen
Hans Lindberg verður ekki meira með danska landsliðinu á HM í handbolta en hornamaðurinn er meiddur. Nikolaj Jakobsen, þjálfari danska landsliðsins, valdi Hans Lindberg í HM-hópinn sinn en nú er ljóst að hann þarf á treysta á aðra menn í hægra horninu. Jakobsen ákvað í framhaldinu að kalla á Jóhan Hansen frá Bjerringbro Silkeborg sem er þrettán árum yngri en Hans. Með því er Nikolaj Jakobsen í raun að skipta Íslendingi út fyrir Færeying. Hans Lindberg heitir fullu nafni Hans Óttar Lindberg Tómasson og á íslenska foreldra. Hann valdi það hinsvegar að spila frekar fyrir danska landsliðið en það íslenska enda hefur hann búið alla tíð í Danmörku. Foreldrar Hans eru Sigrún Sigurðardóttir og Tómas Erling Lindberg Hansson, bæði úr Hafnarfirði. Jóhan Hansen heitir fullu nafni Jóhan á Plógv Hansen og er fæddur og uppalinn í Færeyjum. Hansen flutti til Danmerkur sextán ára gamall. Hansen byrjaði að spila með færeyska landsliðinu en ákvað síðan að spila fyrir Danmörku. Hann var í silfurliði 21 árs liðs Dana á HM 2015 og var þá í úrvalsliði mótsins. Hans Lindberg hefur tvisvar orðið Evrópumeistari með Dönum en á eftir að vinna heimsmeistaratitilinn. Hann var í silfurliði Dana á bæði HM 2011 og HM 2013. Hann vann einnig silfur með Dönum á EM 2014 og brons á HM 2007. Jóhan Hansen spilaði fjóra landsleiki með Færeyjum áður en hann valdi danska landsliðið. Jóhan spilaði fyrsta landsleikinn fyirr Dani árið 2015 og er kominn með fjórtán landsleiki. Þeim mun nú fjölga á HM í Danmörku og Þýskalandi.
HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Fleiri fréttir Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram Sjá meira