Bíó og sjónvarp

True North fær vilyrði fyrir risastyrk til að taka upp James Bond-mynd í Noregi

Birgir Olgeirsson skrifar
Daniel Craig mun leika njósnarann í fimmta sinn.
Daniel Craig mun leika njósnarann í fimmta sinn. Vísir/Getty
Íslenska framleiðslufyrirtækið True North hefur fengið vilyrði fyrir endurgreiðslu á 47 milljónum vegna framleiðslu á tuttugustu og fimmtu James Bond-myndinni í Noregi. Það samsvarar 660 milljónum íslenskra króna miðað við gengi dagsins í dag.

Greint er frá þessu á vef norska ríkisútvarpsins NRK en þar segir að um sé að ræða vilyrði fyrir endurgreiðslu á framleiðslukostnaði kvikmynda en endurgreiðslan í Noregi nemur 25 prósentum af kostnaði. 

Greint er frá því á vef norska ríkisútvarpsins NRK að búist sé við að tökur myndarinnar hefjist í mars en leikstjóri hennar verður Cary Fukunaga, sem á að baki þáttaraðirnar True Detective og Maniac, og mun Daniel Craig leika Bond í fimmta sinn. 

NRK segir það hins vegar ekki komið á hreint hvort þessi Bond mynd, sem enn hefur ekki fengið titil opinberlega, verði tekin upp í Noregi en talið er að líkurnar á því hafi aukist til muna vegna þessa vilyrðis frá kvikmyndasjóðnum.

Sýnir sterka stöðu True North í Noregi

True North er sem fyrr segir íslenskt fyrirtæki en rekur útibú í Noregi og á Kanaríeyjum. Leifur BDagfinsson, stjórnarformaður True North, segir í samtali við Vísi að rekinn sé endurgreiðslusjóður í Noregi sem þurfi að sækja um í til að fá endurgreiðslu. Til þess þurfi að leggja fram fjárhagsáætlun vegna kostnaðar við framleiðslu verkefnisins og er í framhaldinu sé gefið út vilyrði út frá styrkleika verkefnisins.

Leifur B. Dagfinnsson, stjórnarformaður og stofnandi True North.
Leifur segir þetta sýna hve staða True North sé orðin sterk og öflug í Noregi og að fyrirtækið njóti mikils trausts þar. 

Leifur hefur áður komið að framleiðslu James Bond-myndar þegar Die Another Day var tekin upp við Jökulsárlón árið 2001.

Fengu einnig The Snowman til Noregs

True North fékk einnig tökur á myndinni The Snowman til Noregs árið 2016 en endurgreiðslur vegna framleiðslu þeirra myndar úr norska endurgreiðslusjóðnum námu 40,6 milljónum norskra króna.

True North kom einnig að tökum sjöttu Mission Impossible-myndarinnar, Fallout, sem var tekin upp við Predikunarstólinn. Tom Cruise leikur aðalhluverkið í Mission Impossible en hann lék einnig í myndinni Oblivion sem var tekin upp á Íslandi og kom True North að þeirri framleiðslu. 

Endurgreiðslur vegna Mission Impossible-myndarinnar námu sex milljónum norskra króna og Netflix-myndin 22. júlí, sem fjallaði um hryðjuverkaárás Anders Breivik, fékk 17,1 milljón norskra króna.

Stórmyndin Fast 8, úr Fast & Furious-seríunni, fékk 520 milljónir króna endurgreiðslu úr ríkissjóði Íslands árið 2016. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.