Kynferðisbrotakrísa í Síerra Leóne Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 11. febrúar 2019 07:45 Julius Maada Bio, forseti Síerra Leóne.
Julius Maada Bio, forseti Síerra Leóne, lýsti í gær yfir neyðarástandi í landinu vegna kynferðisofbeldisfaraldurs. BBC greindi frá þessu en almenningur í Afríkuríkinu er í losti og hefur kallað eftir róttækum aðgerðum undanfarna daga. Á blaðamannafundi í Freetown hlýddi forsetinn á þolanda kynferðisofbeldis lýsa reynslu sinni. Að ræðu lokinni lýsti hann því yfir að neyðarástandi yrði komið á. „Þegar í stað verður viðurlögum við barnaníði breytt þannig að lífstíðarfangelsi er við slíkum brotum,“ sagði Bio og bætti því við að sérstök deild lögreglu yrði stofnuð til þess að rannsaka kynferðisofbeldi sem og nýr dómstóll sem ætti að geta afgreitt slík mál með hraði. Kærð kynferðisofbeldismál voru tvöfalt f leiri í Síerra Leóne á síðasta ári en árið 2017. Samkvæmt BBC hefur reiði almennings aukist með hverju broti. Eitt alvarlegasta málið, og það sem fékk einna mesta umfjöllun, snerist um fimm ára stúlku sem lamaðist eftir meint kynferðisbrot frænda síns. Aðgerðasinnar í landinu benda á að afar lítill hluti brota sé kærður til lögreglu og að í enn færri málum sé ákært. Þá sé þeirri refsingu sem mælt er með, fimm til fimmtán ára fangelsi, sjaldan beitt. Til að mynda fékk 56 ára maður sem nauðgaði sex ára stúlku einungis eins árs fangelsisdóm á síðasta ári.
Birtist í Fréttablaðinu Síerra Leóne Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira