Stefán hættir sem forstjóri Sýnar Kristín Ólafsdóttir skrifar 27. febrúar 2019 19:57 Stefán Sigurðsson, forstjóri Sýnar
Stefán Sigurðsson forstjóri Sýnar hefur óskað eftir því að láta af störfum sem forstjóri fyrirtækisins frá og með 1. júní nk., samkvæmt samkomulagi við stjórn Sýnar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Sýn. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um ráðningu forstjóra í hans stað en ráðningarferli er hafið. Stefán mun verða stjórninni innan handar þar til nýr forstjóri er ráðinn, að því er segir í tilkynningu. Stjórn félagsins hefur falið Heiðari Guðjónssyni stjórnarformanni að annast í auknum mæli skipulag félagsins og gæta þess að rekstur þess sé í réttu og góðu horfi fram að ráðningu nýs forstjóra. Í tölvupósti sem Stefán sendi starfsmönnum Sýnar í kvöld segir að ákvörðun hans um starfslok á þessum tímapunkti sé tvíþætt. „Ég vil í fyrsta lagi taka ábyrgð á því að afkomuspár hafa ekki gengið eftir og í öðru lagi viðurkenna að mikil orka fór á síðasta ári í samrunann og ég tel að félagið þurfi á þessum tímapunkti forstjóra með fulla tanka af orku.“Stefán hefur gegnt starfi forstjóra síðan árið 2014, þegar hann var ráðinn forstjóri Vodafone (Fjarskipta hf.). Félagið varð að Sýn í mars í fyrra eftir að kaup á tilteknum eignum og rekstri 365 miðla hf. gengu í gegn. Vísir er í eigu Sýnar hf.
Fjölmiðlar Vistaskipti Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Sjá meira