Lífið

Hálsmen Lady Gaga metið á 3,6 milljarða og það þótti kunnuglegt

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lady Gaga var stórglæsileg í Los Angeles í nótt.
Lady Gaga var stórglæsileg í Los Angeles í nótt.
Tónlistarkonan Lady Gaga vann í nótt Óskarinn fyrir besta frumsamda lagið, Shallow, sem flutt var í kvikmyndinni A Star is Born.

Lady Gaga þótt stórglæsileg á verðlaunahátíðinni og tóku margir eftir fallegu demantshálsmeni.

Um er að ræða 128 karata hálsmen frá Tiffany´s sem metið er á 30 milljónir dollara eða því sem samsvarar 3,6 milljarða.

Það var enginn önnur en Audrey Hepburn sem bar hálsmenið á kynningartúr fyrir kvikmyndina Breakfast At Tinnany´s árið 1961.

Glöggir áhorfendur tóku aftur á móti einnig eftir því að Kate Hudson var með sama hálsmen í kvikmyndinni How to Lose a Guy in 10 days sem kom út árið 2003 eins og sjá má hér að neðan.




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.