Annar framkvæmdastjóri yfirgefur Sýn Stefán Ó. Jónsson skrifar 19. mars 2019 09:53 Hrönn Sveinsdóttir hafði gegnt stöðu sinni frá árinu 2005. Sýn
Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Sýnar, hefur ákveðið að láta af störfum sem fjármálastjóri fyrirtækisins frá og með 1. júní 2019. Í tilkynningu frá Sýn er þess getið að Hrönn hafi gegnt umræddri stöðu frá árinu 2005 og að hún hafi borið ábyrgð á fjármálum, mannauðsmálum og miðlægum rekstri félagsins. Auk þess hafi hún „tekið þátt í að leiða félagið í gegnum miklar breytingar, þ.m.t. skráningu í Kauphöll, nú nýverið samruna við 365 sem og innleiðingu á „BESTA“ starfsmannaumhverfi að Suðurlandsbraut 8-10, hugmyndafræði sem Vodafone Group hefur innleitt víðsvegar um heiminn.“ Hrönn bætist þar í hóp lykilstjórnenda sem yfirgefið hafa Sýn á síðustu mánuðum. Má þar t.a.m. nefna þau Björn Víglundsson, framkvæmdarstjóra Miðla, og Ragnheiði Hauksdóttur sem leitt hafði einstaklingssvið Sýnar. Þau létu af störfum sínum fyrir fyrirtækið um miðjan janúar síðastliðinn. Þá ákvað forstjóri Sýnar, Stefán Sigurðsson, jafnframt að róa á önnur mið. Greint var frá brotthvarfi hans í lok febrúar. Stjórn félagsins fól Heiðari Guðjónssyni, stjórnarformanni Sýnar, að annast í auknum mæli skipulag félagsins og gæta þess að rekstur þess sé í réttu og góðu horfi fram að ráðningu nýs forstjóra.Vísir er í eigu Sýnar hf.
Fjölmiðlar Vistaskipti Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Fleiri fréttir Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Sjá meira