Brot Google áttu sér stað á tíu ára tímabili, frá árinu 2006 til 2016. Brotin felast í því að hindra að keppinautarnir selji auglýsingar á netinu með því að nota markaðsráðandi stöðu sína. Eftir að málið komst upp breytti Google auglýsingasamningum sínum við þriðja aðila til að veita þeim meira svigrúm til að birta auglýsingar í samkeppni við Google.
„Google er búið að festa sig í sessi sem risinn á markaðnum með auglýsingar á netinu og hefur náð að skýla sér fyrir samkeppni með því að setja samkeppnishamlandi skilmála í samningum við þriðja aðila,“ sagði Vestager. „Þetta er bannað samkvæmt samkeppnislögum ESB.“
Kent Walker, yfirmaður alþjóðadeildar Google, lofar bót og betrun. „Við höfum nú þegar gert margvíslegar breytingar til að koma til móts við samkeppnisdeildina. Við munum gera frekari breytingar á næstunni til að auka sýnileika keppinauta okkar í Evrópu.“

Sektin í gær er sú þriðja á innan við þremur árum sem ESB leggur á Google fyrir brot á samkeppnislögum. Alls er búið að sekta fyrirtækið um 8,9 milljarða evra, eða sem nemur 1.200 milljörðum króna.
Google er markaðsráðandi þegar kemur að leitarvélum, mest í Evrópu þar sem markaðshlutdeildin er 90 prósent. Alphabet, móðurfélag Google, þénar umtalsverðar fjárhæðir í gegnum auglýsingasölu. Hagnaðurinn í fyrra nam 30,7 milljörðum dollara, eða tæplega 3.600 milljörðum króna.
Auglýsingatekjur Google koma helst inn í gegnum AdSense, forrit sem birtir leitarniðurstöður frá aðilum sem hafa greitt fyrir það samhliða hefðbundnum leitarniðurstöðum. Einnig birtir forritið auglýsingar sem eru sérsniðnar að notandanum, er til dæmis tekið mið af staðsetningu og hvernig vef notandinn er að skoða. Einnig er tekið mið af fyrri leitum notandans.
Til að fá hagnað í gegnum auglýsingar hafi vefsíðueigendur þurft að gangast við því að gefa Google öll verðmætustu auglýsingaplássin ásamt því að þurfa að fá leyfi frá Google til að birta auglýsingar í gegnum Yahoo! eða Microsoft. Á blaðamannafundi í gær lýsti Vestager Google sem millilið fyrir auglýsingar sem hefði komið sér upp vítahring.
„Keppinautar Google gátu ekki stækkað, sem leiddi til þess að eigendur vefsíðna þurftu að reiða sig eingöngu á Google,“ sagði Vestager í gær. „Það var engin ástæða fyrir Google að leggja á þessar kvaðir aðrar en til að hindra samkeppni.“