Fjármálaeftirlit Svíþjóðar og Eistlands létu gera húsleit á skrifstofum sænska bankans Swedbank í Eistlandi í vikunni. Ásakanir hafa komið fram um að bankinn hafi tekið þátt í að þvætta hundruð milljarða illa fengins fjár.
Eistneska fjármálaeftirlitið upplýsti um húsleitina í dag, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Hún hafi verið hluti af sameiginlegri rannsókn þess og sænskra yfirvalda. Talsmaður bankans segir að húsleitin hafi farið fram í samráði við stjórnendur hans. Swedbank ætli að vera samvinnuþýður við rannsóknina.
Birgitte Bonnesen, forstjóri Swedbank, var rekin í síðustu viku eftir að húsleit var í höfuðstöðvum hans við Stokkhólm.
Peningaþvættismál hafa skekið norræna banka undanfarin misseri. Danske bank hefur verið sakaður um að hafa þvættað hundruð milljarða evra í eistneskum útibúum fyrir vafasama aðila á árunum 2017 til 2015.
Bankinn hafi þannig meðal annars hjálpað spilltum rússneskum embættismönnum að koma undan milljörðum sem þeir drógu að sér. Nýlega komu fram ásakanir um að vafasamar greiðslur hafi runnið í gegnum Swedbank sömuleiðis.
Leitað á skrifstofum Swedbank í Eistlandi

Tengdar fréttir

Swedbank kærður vegna peningaþvættis
Sænski bankinn flækist inn í meiriháttar peningaþvættismál sem hefur skekið norræna banka undanfarin ár.

Forstjóri Swedbank rekinn í kjölfar húsleitar tengdri peningaþvætti
Ásakanir um peningaþvætti skekja sænska bankann. Yfirvöld létu gera húsleit í höfuðstöðvum hans í gærmorgun.