Gazalega furðuleg fréttamennska Ívar Halldórsson skrifar 2. apríl 2019 10:28 Það er áhugavert hversu sumir fréttamenn leggja sig fram um að mála fagra mynd af hryðjuverkamönnunum sem stöðugt gera árásir á lýðræðisríkið Ísrael. Frétt á RÚV sem birtist 30.mars gengur svo langt að segja að „mótmæli“ Palestínumanna við landamæri Ísrael á Gaza síðastliðið ár hafi verið að mestu friðsamleg. Skoðum þetta aðeins.Friðsamlegar morðtilraunir Síðasta ár var yfir 650 bensínsprengjum varpað, 1.300 eldflaugum skotið á loft, 35 ferkílómetrar af landsvæði brennt/eyðilagt, yfir 1.900 íkveikjublöðrur sendar yfir landamærin og 2.000 aðrar ofbeldistilraunir gerðar til að valda eyðileggingu og dauða. Allt var þetta gert að yfirlögðu ráði til að eyðileggja, skelfa, meiðs og drepa saklausa ísraelska borgara.Lögreglan og táragasið Lögreglan hér á landi var í samanburði það skelkuð þegar óvopnaðir útlendingar söfnuðust saman á Austurvelli að henni fannst brýn þörf á að beita táragasi, sem þykir nú frekar gróf og áhættusöm viðspyrna, þar sem afleiðingar gassins geta verið alvarlegar. Ástæðan fyrir notkun táragassins var sú að lögreglan taldi að verið væri að byggja bálköst auk þess sem einhverjir skapheitir útlendingar spörkuðu í einhverja lögreglumenn.Friðsamlegar eldflaugar og önnur friðelskandi vopn Ef vopnalaus mótmæli 70-80 útlendinga kalla á notkun táragass þá veltir maður fyrir sér hvaða ráða sé eðlilegt að grípa til þegar einn daginn yfir 30.000 manns sækja að landamærum lýðræðisríkis - fjölmargir þeirra grímuklæddir og vopnaðir - á sama tíma og sótt er að með eldflaugum og eldsprengjum. Einn slíkur dagur væri einn og sér nægilega erfiður á allra mælikvarða - en nú er komið ár af þessum ofbeldisfullu mótmælum á Gaza. Ef fréttamenn leyfa sér að kalla slíkar afar herskáar aðgerðir “friðsamlegar” þá gengur slík skilgreining í berhögg við hvernig við sjálf skilgreinum friðsamleg mótmæli hér á heimavelli.„Ekki friðsamt“ á Austurvelli Aðalvarðstjóri lögreglunnar sagði eftirfarandi í viðtali sem tekið var við hann í kjölfar valdbeitinga lögreglu á Austurvelli, en hann þvertekur fyrir að þar hafi harðræði verið beitt með notkun táragass: „Við teljum að þetta hafi ekki verið harðræði, þetta var nauðsynleg aðgerð af því það var ráðist á lögreglu. Fólk var ekki að hlýða fyrirmælum og það hindraði okkur við að fylgja eftir því sem við vorum búin að skipa með tjöldin og pappann. Það kallaði þetta borgaralega óhlýðni en það er vafasamt hugtak, hvað er borgaraleg óhlýðni, þá er fólk ekki að hlýða lögreglu og annað, þetta var ekki bara friðsamt.“Lygavefurinn Fréttamenn hér segja að mótmælin við Gaza hafi verið friðsamleg?! Ekki gaza-lega gáfuleg niðurstaða ef þeir í raun vinna vinnuna sína og bera sig eftir auðfengnum upplýsingum sem skráðar eru og myndaðar af þessum atburðum. Hamas foringinn Mahmoud Al-Zahhar viðurkenndi meira að segja opinberlega í viðtali að þegar Hamas talaði um „friðsamleg mótmæli“ væri „viljandi verið að blekkja almenning“. Það tókst heldur betur því að fréttamenn okkar eru margir enn pikkfastir í lygavefnum.Hinn eilífi „flóttamanréttur“ Þá er rétt að taka fram að aðal grundvöllur „mótmælanna“ við Gaza og stærsta fyrirstaðan fyrir friði hefur verið krafa palestínskra flóttamanna um að fá að „snúa aftur til heimalands síns“. En það sem fólk áttar sig ekki á er að í dag eru í raun aðeins fáir raunverulegir svokallaðir palestínskir flóttamenn eftir. Í dag eru í mesta lagi nokkrir tugir þúsunda eru enn á lífi; eða milli 5-10% af upprunalegum fjölda. Hvernig er það mögulegt að á meðan höfðatala í öðrum flóttamannahópum heims fækkar, margfaldast tala palestínskra flóttamanna? Árið 1948 var fjöldi palestínskra flóttamanna sagður vera um 700.000, en vegna þeirrar óeðlilegu og fordæmalausu kröfu um að allir afkomendur; börn, barnabörn og barna-barnabörn umræddra hafi sama “flóttamannarétt” og forverar sínir er fjöldinn nú búinn að tífaldast á þessum tíma.Ríkissjálfsmorð Ekki neins staðar í veröldinni er flóttamannastaða ættgeng. Ef slíkar endurkomukröfur væru gerðar annars staðar í heiminum myndu stjórnmálamenn einfaldlega rúlla augunum. Það er engin heilvita ríkisstjórn að fara að pakka saman heilli þjóð og flytja hana úr landi eftir 70 ára búsetu. Krafa Palestínumanna er sú, eins og áður sagði, að allir afkomendur hinna upprunalegu flóttamanna hafi rétt á að “snúa aftur” til heimalandsins sem flóttamenn. Vandamálið er að í dag eru þetta um 7 milljónir Araba sem um ræðir og ef Ísrael gæfi þessar kröfur eftir og allir Arabar fengju að “snúa aftur”, myndi það þýða ríkissjálfsmorð og óhjákvæmileg afleiðing væri gjöreyðing Gyðingaríkis á jörðinni. Hvaða gáfum gædda manneskja myndi nokkru sinni skrifa undir slíkt dauðans samkomulag? Það er engin manneskja svo heimsk.Einn af fimm í Ísrael er Arabi Þá eru ekki margir sem gera sér grein fyrir því að 20% íbúa Ísraels eru reyndar Arabar. Þessir Arabar lifa betra lífi en allir aðrir Arabar í Mið-Austurlöndum sem og í Evrópu, samkvæmt opinberum rannsóknum. Það búa því þegar fjölmargir Arabar í Ísrael og einhverjir þeirra eru afkomendur þeirra sem voru titlaðir „flóttamenn“ á árunum 1946-1948. Ísrael hefur ekkert á móti friðsömum Aröbum - það eru hins vegar þessir ófriðsömu og árásargjörnu sem þeir hika við að hleypa inn í landið, af augljósum ástæðum.Rót vandans ekki hernumdu svæðin Rétt er að setja eitt annað í rétt samhengi. Þótt mikið sé rætt um hernumdu svæðin í fjölmiðlum og fjöldi fólks telji þau vera ein helsta fyrirstaða fyrir friði milli Ísraela og Palestínumanna, þá er það ekki svo. Flestir virðast halda að þetta svæði sé afar stórt - fjölmargir ef ekki flestir giska á 30-50% af Vesturbakkanum. Flestir átta sig þó ekki á að þetta svæði sem um ræðir er aðeins 2,7% af öllum Vesturbakkanum. Þetta er auðvitað eitthvað sem þarf að leysa þegar þar að kemur - en þetta er ekki grundvallarástæða þess að friður næst ekki milli þessara hópa.Íslendingum kennt að hata Fréttamennska á að byggjast á rétt skráðum staðreyndum og vera í jafnvægi við það sem eðlilegt þykir í nútímaþjóðfélagi. Ef ein þjóð er tekin út fyrir eðlilegan ramma og almennar reglur veltir maður fyrir sér hvað gæti legið að baki slíkri sérmeðferð annað en andúð á kynþætti Gyðinga. Af hverju þurfa Gyðingar t.d. alltaf að standast hærri og ósanngjarnari kröfur en aðrar þjóðir heims? Af hverju njóta þeir aldrei vafans? Af hverju er gert lítið eða ekkert úr stöðugum árásum hryðjuverkastjórnar Hamas á Ísrael; stjórn sem hefur lýst því opinberlega yfir að þeir sætti sig ekki við neitt minna en að yfirtaka hvern einasta ferkílómeter af landi Gyðinga; Ísrael? Af hverju horfa Sameinuðu þjóðirnar fram hjá stríðsglæpum og þjóðarmorðum í hinum ýmsu löndum en skrá niður nánast hvern hnerra hjá ísraelska hernum er hann ver pínulitla landið sitt gegn stöðugum árásum hryðjuverkastjórnar Hamas; þessa litlu 0,4% flís af Arabaheiminum sem Ísrael er? Já, landið er ekki stærra en það. Lítið á heimskortið.Gyðingaandúð á Íslandi Hefur fólk andúð á Gyðingum einfaldlega af því að þeir eru Gyðingar? Reyndar held ég að flestir þeirra Íslendinga sem hata Gyðinga hati þá vegna þess að þeim hefur í raun verið kennt að hata þá með t.d. óvæginni umfjöllun fjölmiðla af Ísrael og óábyrgri meðferð eða/og hundsun meintra fagmanna fréttamiðla á opinberlega viðurkenndum staðreyndum. Of margir íslenskir fréttamenn kynda meðvitað eða ómeðvitað undir hatur á þjóð sem þeir virðast þó lítið þekkja miðað við þessar miður faglegu fréttir sem þeir birta í fréttamiðlum. Í sömu andrá vekja þeir samúð landans með hryðjuverkamönnum sem svífast einskis til að taka eina landið sem Gyðingaþjóðin getur kallað heimili sitt á þessari jörð.Hræddir við að heimsækja Ísland Í ljósi þess að spáð er gífurlegri fækkun ferðamanna til landsins er leitt að geta þess að Ísraelar segjast nú því miður margir veigra sér við að koma til Íslands því þeir telja Íslendinga vera Gyðingahatara. Miðað við fyrirlitninguna á Ísrael sem skín oft í gegn í fölskum fréttagreinum hérlendis skilur maður alveg af hverju þeim finnst það. Þetta eru þó ekki ummæli til að hrósa sér af - og í raun sorglegt að við sem státum okkur af að vera friðelskt og kærleiksríkt þjóðfélag sem umvefur fjölbreytni, séum kennd við hatur.Hlutdræg fréttamennska Það er nóg komið af rangfærslum og furðulega fölskum fréttum frá botni Miðjarðarhafs. Ef færa á okkur slæmar fréttir frá Ísrael er þó lágmark að þær séu sannar, óhlutdrægar, og feli í sér réttar upplýsingar - og af gefnu tilefni; óháðar persónulegum skoðunum fréttamannanna sem fréttirnar skrifa. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ívar Halldórsson Mest lesið Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun Gríðarlegur velferðarábati með upptöku evru Dagur B. Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gríðarlegur velferðarábati með upptöku evru Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar Sjá meira
Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar
Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun