Fylkir vann nýliðaslaginn Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 2. maí 2019 21:26 Fylkiskonur byrja deildina vel vísir
Stjarnan, Fylkir og HK/Víkingur byrjuðu Pepsi Max-deild kvenna á sigrum en fyrsta umferð deildarinnar fór af stað í kvöld. HK/Víkingi og KR var spáð falli í spá fyrirliða og forráðamanna fyrir tímabilið og liðin mættust í Kórnum í kvöld. Heimakonur fengu nóg af færum til þess að komast yfir í upphafi leiks en markið kom ekki fyrr en á 38. mínútu þegar Þórhildur Þórhallsdóttir skoraði eftir sendingu Fatma Kara. Leikmenn KR reyndu hvað þær gátu að jafna metin þegar leið á leikinn en jöfnunarmarkið kom ekki og HK/Víkingur fagnaði 1-0 sigri. Það var nýliðaslagur í Árbænum þar sem Fylkir og Keflavík mættust. Byrjunin var svo sannarlega fjörug en Ída Marín Hermannsdóttir kom Fylki yfir strax á 2. mínútu með skoti í slána og inn. Mínútu seinna var Sveindís Jane Jónsdóttir búin að jafna fyrir Keflavík. Í upphafi seinni hálfleiks kom Marija Radojicic heimakonum aftur yfir með góðu einstaklingsframtaki. Þannig lauk leik með 2-1 sigri Fylkis. Fylkir var sterkara liðið í fyrri hálfleik en Keflavík sótti í þeim seinni án þess að uppskera. Á Samsungvellinum í Garðabæ mætti Stjarnan Selfyssingum. Eina mark leiksins skoraði Birna Jóhannsdóttir eftir fyrirgjöf Sóleyjar Guðmundsdóttur. Fylkir, HK/Víkingur og Stjarnan bætast því í hóp með Breiðabliki með þrjú stig eftir fyrsta leik. Umferðinni líkur svo með leik Vals og Þórs/KA annað kvöld.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Arsenal - Coventry City | Titilvörn Englandsmeistaranna hefst Enski boltinn Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Íslenski boltinn Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti FH - Víkingur R | Nýta þær sér mistök meistaranna? Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA FH - Víkingur R | Nýta þær sér mistök meistaranna? Þór/KA - Valur | Valskonur í færi á að koma sér úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu „Þetta gekk eins og í sögu“ Sjá meira