Lífið

Eiga Hatarar tveggja tíma yfirheyrslu í vændum?

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Dansarar Madonnu voru með fána aftan á búningum sínum, annar bar ísraelskan fána og hinn palestínskan.
Dansarar Madonnu voru með fána aftan á búningum sínum, annar bar ísraelskan fána og hinn palestínskan. Vísir/GEtty
Dansari í atriði bandarísku söngkonunnar Madonnu á Eurovision í gærkvöldi segist hafa verið stöðvuð á flugvellinum í Tel Aviv og yfirheyrð í næstum tvo klukkutíma áður en hún fékk að yfirgefa landið. Umræddur dansari bar fána Palestínu í atriðinu sem sýnt var í beinni útsendingu í gær. Óljóst er hvernig tekið verður á móti Hatara, fulltrúum Íslands í Eurovision, á flugvellinum en þeir voru með sambærilegan gjörning í útsendingunni í gær.

Sjá einnig: Ísraelskir fjölmiðlar rólegir yfir útspili Hatara og spá meira í Madonnu

Mona Berntsen, dansarinn sem hér á í hlut, greinir frá málinu á Instagram-reikningi sínum. Hún þakkar Madonnu fyrir að hafa gert sér kleift að lýsa yfir stuðningu við Palestínu í gærkvöldi og segir „kúgunina á Vesturbakkanum“ raunverulega.

„Klukkutímarnir eftir sýninguna í gær hafa verið spennuþrungnir en ég hefði ekki getað gert mér í hugarlund að fylgst skyldi með mér líkt og raunin varð,“ skrifar Berntsen í færslunni, þar sem hún birtir myndir af sér með fánann í atriðinu.

Hún lýsir því svo að vegabréf hennar hafi verið grandskoðað af mörgum starfsmönnum við innritun í flugið heim og þá hafi yfirmaður öryggismála á flugvellinum yfirheyrt hana í rúman einn og hálfan klukkutíma. Hún hafi verið látin fara með ævisögu sína, gefa upp ástæður fyrir ferðalögum sínum til Miðausturlanda og lýsa öllu sem hún tók sér fyrir hendur þegar hún heimsótti Jerúsalem fyrir þremur árum.

„Á leið minni ÚT úr landinu! Allt, að því er virðist, fyrir að bera fána sem hluta af sýningu, að lýsa yfir afstöðu í deilu, að stuðla að friði, einingu og frelsi.“

Færslu Berntsen má sjá hér að neðan.

Gjörningur Madonnu vakti heldur meiri athygli ísraelskra fjölmiðla en sambærilegur gjörningur Hatara, sem einnig sýndu fána Palestínu í beinni útsendingu Eurovision í gærkvöldi. Madonna hafði þann háttinn á að láta tvo dansara bera fána, Berntsen bar fána Palestínu og ónefndur karldansari bar fána Ísraels, sem tákna átti frið milli landanna tveggja.

Framkvæmdastjórn Eurovision sagði fánana ekki hafa verið sýnilega á æfingum fyrir kvöldið og ekki hafi fengist leyfi fyrir þeim. Brot úr atriði Madonnu, þar sem fánarnir sjást greinilega, má sjá í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.