Lífið

Ísraelskur stuðningsmaður dáist að hugrekki Hatara

Kolbeinn Tumi Daðason í Tel Aviv skrifar
Linoy með íselnskan fána sem hún fékk hjá fjölskyldum Hatara sem sátu í grennd við hana í Expo Tel Aviv höllinni á fyrra undanúrslitakvöldinu.
Linoy með íselnskan fána sem hún fékk hjá fjölskyldum Hatara sem sátu í grennd við hana í Expo Tel Aviv höllinni á fyrra undanúrslitakvöldinu. Vísir/Kolbeinn Tumi
Hin ísraelska Linoy er mikill stuðningsmaður Hatara og raunar Íslands í Eurovision. Hún er búsett í Tel Aviv og segir mikilvægt að skerða ekki tjáningarfrelsi. Mikilvægt sé að Hatari geti sagt sína skoðun á málefnum Ísraels og Palestínu og hiki hvergi þótt sveitin sé stödd hér í landi.

Blaðamaður hitti á Linoy fyrir utan Expo Tel Aviv höllina að loknu fyrra undanúrslitakvöldinu á þriðjudaginn. Hún var beðin um að útskýra af hverju hún væri stuðningsmaður Hatara.

„Í fyrsta lagi kann ég að meta tónlistina. Hún er geggjuð, öðruvísi og fersk. Ég kann að meta þungarokk og fyrir mér er atriðið mjög sérstakt,“ segir Linoy.

„Í öðru lagi, það sem fangar athygli mína frá hinum lögunum, er að þeir eru ekki afsakandi. Þeir eru með skilaboð sem hljóma ekki vel í eyru Ísraela en þeir standa á bak við þau engu að síður. Segja hug sinn og biðjast ekki afsökunar. Þess vegna styð ég þá.“

Hún svarar játandi aðspurð hvort henni finnist þeir sína kjark og þor.

„Þeir eru hugrakkir og þetta snýst um tjáningarfrelsi. Það er það fallega við Evrópu og lýðræðisríki. Stundum þarftu að segja skoðun þína en ekki halda aftur af þér af því þú ert staddur í Ísrael. Ég kann að meta það.“

Allt konseptið sé magnað og hún dáist að framlagi Íslands til tónlistar í heiminum.

„Ísland er fámennt land, með mun færri íbúa en Ísrael, en alls konar öðruvísi tónlist. Ég elska til dæmis Björk. Það er eitthvað sem við höfum ekki í Ísrael, Bretland eða annars staðar. Í hvert skipti sem ég sé Ísland í Eurovision þá veit ég að atriðið er eitthvað stórkostlegt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.