Lífið

Stærsta partýið í Tel Aviv í garðinum hjá Hatara

Kolbeinn Tumi Daðason og Stefán Árni Pálsson í Tel Aviv skrifar
Hótel íslenska hópsins með Eurovision-merkingu á gaflinum. Þúsundir voru í Eurovision Village á sjöunda tímanum þegar Vísismenn litu við.
Hótel íslenska hópsins með Eurovision-merkingu á gaflinum. Þúsundir voru í Eurovision Village á sjöunda tímanum þegar Vísismenn litu við. Vísir/Kolbeinn Tumi
Segja má að stærsta partýið í Tel Aviv sé í bakgarði Hatara. Frá tíu á morgnana og langt fram á kvöld. Eurovision Village er afdrep Eurovision aðdáenda og annarra við ströndina í Tel Aviv.

Þar kemur fólk saman til að hlusta á tónlist, fá sér að borða, baða sig í sólinni og skemmta sér.

Neðst í fréttinni má sjá innlag frá heimsókn í Euro Village.

Gestir í garðinum eru í áskrift að sól og blíðu líkt og aðrir sem staddir eru í Tel Aviv.Vísir/Kolbeinn Tumi
Ein umferðargata skilur að Dan Panorama hótelið þar sem Hatari og íslenski hópurinn dvelur og þorpið. Lætin frá þorpinu eru mikil stærstan hluta dagsins enda risastórir hátalarar sem sjá til þess að hljóðið berist sem víðast, hvort sem fólki líkar betur eða verr.

Stærsta sviðið í þorpinu.Vísir/Kolbeinn Tumi
Þorpið er þó alls ekkert þorp að stærð. Það spannar afar stórt svæði og þegar fulltrúar Vísis litu við á sjöunda tímanum að staðartíma voru mörg þúsund manns mætt til að skemmta sér. Þá voru enn þrír til fjórir tímar þar til síðara undanúrslitakvöldið í Eurovision hæfist.

Kunnugleg andlit en alls konar listamenn selja varning í garðinum.Vísir/Kolbeinn Tumi
Í garðinum er hægt að hlusta á lifandi tónlist á nokkrum sviðum, kaupa sér að því er virðist allan mögulegan mat, njóta áfengra sem óáfengra drykkja og kaupa Eurovision-varning eða aðrar vörur. Þótt margan Eurovision-aðdáandann sé að finna í garðinum þá fjölmenna heimamenn frá Ísrael í garðinn til að skemmta sér.

Þessi fjölskylda verður vonandi ekki fyrir vonbrigðum með myndina af sér.Vísir/Kolbeinn Tumi
Heimamenn sem blaðamenn ræddu við voru allir á einu máli um að þeir kynnu virkilega vel að meta Ísland. Íslenska lagið? Það voru skiptar skoðanir um það og sumir höfðu hreinlega ekki heyrt um Hatara.

Vísir tók púlsinn á gestum í þorpinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.