Frábær fjölskylduskemmtun á Secret Solstice Secret Solstice kynnir 17. maí 2019 08:45 Í samvinnu við borgina verður hátíðin styttri en árin á undan, tónleikadagskráin í dalnum hefst seinna en áður og lýkur hvert kvöld klukkan 23.30, og flóra þeirra listamanna sem koma fram höfðar til breiðari aldurshóps en áður. Secret Solstice
Tónlistarveislan Secret Solstice fer fram dagana 21. til 23. júní í Laugardalnum. Áhersla er lögð á fjölskylduvæna skemmtun en aðstandendur hátíðarinnar vinna náið með Reykjavíkurborg að skipulagningu.Jón Bjarni Steinsson, upplýsingafulltrúi Secret Solstice hlakkar til að taka á móti fjölskyldufólki í Laugardalinn.„Þetta verður í sjötta sinn sem Secret Solstice fer fram en í ár verður hún með talsvert breyttu sniði,“ segir Jón Bjarni Steinsson, upplýsingafulltrúi Secret Solstice. „Nýr eigandi er nú að hátíðinni og óformlegt leyfi fékkst frá Reykjavíkurborg í september síðastliðnum og hefur skipulagning staðið yfir síðan. Í samvinnu við borgina verður hátíðin styttri en árin á undan, eða þrír dagar í stað fjögurra, tónleikadagskráin í dalnum hefst seinna en áður og lýkur hvert kvöld klukkan 23.30, og flóra þeirra listamanna sem koma fram höfðar einnig til breiðari aldurshóps en áður. Þá verður aukið eftirlit með því að ungmenni séu ekki skilin eftir án forráðamanna á hátíðinni. Við leggjum áherslu á að Secret Solstice er metnaðarfull tónlistarhátíð en ekki drykkjuhátíð og allir leggjast á eitt um að gera hlutina vel,“ segir Jón. Neikvæð umræða um hátíðina undanfarnar vikur eigi ekki alltaf við rök að styðjast.Fimm ára farsæl hátíðahöld „Það er lítill en hávær hópur sem hefur stýrt umræðunni um hátíðina og sú umræða er ekki alltaf rétt. Á þeim fimm árum sem hátíðin hefur farið fram hefur aldrei komið upp alvarlegt slys og aldrei hefur verið tilkynnt um kynferðisbrot. Það er vegna þess að við vöndum okkur,“ segir Jón. „Secret Solstice er einnig eina hátíðin þar sem kallað er eftir athugaesmdum frá jafn stórum hópi hagmunaaðila ásamt almennum borgurum, því við viljum geta brugðist við og gert betur. Fyrir þetta á Reykjavíkurborg mikið hrós skilið. Við lúslesum allar athugasemdir sem gerðar eru við hátíðina. Við höfum til dæmis reynt að bregðast við kvörtunum um svokölluð „skottpartý“ sem myndast hafa á bílastæði KSÍ, með því að fá leyfi til að loka bílastæðunum. Við fengum það loks í gegn í ár og bílastæðin verða lokuð.“Aukið eftirlit með yngri gestum „Síðustu ár hefur verið frítt inn á hátíðina fyrir krakka undir 10 ára en í ár hefur það verið hækkað í 12 ára og yngri. Þá er sú nýbreytni í ár að 12 til 17 ára ungmenni munu geta keypt sérstakan ódýrari ungmennapassa. Þannig verður ódýrara fyrir fjölskyldur að fara saman á hátíðina. Þá verða armböndin fyrir ungmenni í öðrum lit en armbönd fullorðinna, sem auðveldar okkur að sjá og fylgjast með hverjir eru undir 18 ára á svæðinu. Við leggjum mikla áherslu á að ungmenni séu ekki eftirlitslaus á hátíðinni heldur séu stöðugt í fylgd forráðamanns sem er yfir tvítugu. Það hafa ekki allir farið eftir þessu, fólk hefur verið að skutla krökkunum á hátíðina en skilið þau svo eftir. Við viljum gera allt sem við getum svo að fólk á öllum aldri getið notið þeirrar frábæru tónlistardagskrár sem Secret Solstice hefur uppá að bjóð, enda er stór hópur barna og unglinga sem mæta með foreldrum, öfum og ömmum eða frændum og frænkum til njóta tónlistarinnar. Við vildum ekki láta þann litla hóp sem stendur sig ekki skemma fyrir öllum hinum. Til að fylgja þessum hlutum enn betur eftir verður einnig sú nýbreytni höfð í ár að sækja þarf nýtt armband á hverjum degi sem gefur aðgang að börunum og þannig tryggja það að fólk undir tvítugi fái ekki afgreiðslu.“Kátt á Klambra sjá um barnasvæðið „Síðustu ár hefur verið sérstakt barnasvæði á Secret Solstice, með dagskrá fyrir krakkana, andlitsmálningu og fleira. Umsjónarmenn Kátt á Klambra halda utan um barnasvæðið í ár eins og í fyrra en samstarfið við þau hefur gengið afar vel,“ segir Jón. „Nú bætum við enn í dagskrána fyrir krakkana og á svæðinu verða til dæmis klessubílar í fyrsta skipti, tívolítæki og margt fleira. Reykjavíkurborg mun sjá um hreinsun á svæðinu í kringum Laugardalinn og við erum einnig í samvinnu við breskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þrifum á útisamkomum til að sjá um hátíðarsvæðið sjálft. Sú samvinna gekk mjög vel í fyrra og taka má fram að engar kvartanir bárust í fyrra varðandi umgengni og hreinsun á hátíðasvæðinu. Þá höfum við átt í frábæru samstarfi við lögregluna,“ segir Jón.Frítt inn fyrir börn að sjá Hatara „Það er svo gaman að benda á það að lokum að hljómsveitin Hatari mun koma fram á aðalsviði hátíðarinnar að kvöldi laugardagsins. Hægt er að kaupa dagspassa á hvern dag og börn 12 ára og yngri fá, eins og áður segir, frítt inn í fylgd með foreldrum sínum. Dagspassinn kostar ekki nema 10.990 krónur og auk Hatara eru á aðalsviðinu það kvöld Jói Pé og Króli ásamt risabandinu Black Eyed Peas. Fjölskylduskemmtunin gerist ekki mikið betri en það,“ segir Jón. „Við hlökkum til þess að taka á móti gestum á öllum aldri í sumar og þá sérstaklega fjölskyldufólki.“ Myndir frá hátíðahöldunum í fyrra má sjá hér fyrir neðan. Miðasala er í fullum gangi á Secretsolstice.isÞessi kynning er unnin í samstarfi við Secret Solstice.
Secret Solstice Tónlist Mest lesið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Leikarapar selur í 101 Lífið Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Fleiri fréttir Ný bókunarvél hjá Úrval Útsýn og fjöldi spennandi ferðamöguleika Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Myndaveisla: Fjör í Hafnarfirði um helgina Nýr grillþáttur fer í loftið á þriðjudag Orion tannlæknastofa stækkar og opnar stofu á 5 stjörnu hóteli í miðbæ Búdapest Bylgjulestin mætir á Hjarta Hafnarfjarðar á laugardag Bylgjulestin lét sig ekki vanta í eina af stærstu veislum ársins á Þingvöllum Kallar próteinið gull og segir kreatín leyndan lykil að betri líðan Kerlingarfjöll: Ævintýri á hálendi Íslands Stofnhús með opið hús í Hnjúkamóa í Þorlákshöfn Klassíkin heldur velli en ný bragðævintýri ryðja sér til rúms Bylgjulestin mætir á Þingvelli á laugardag Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Bylgjulestin: Veðurblíða, góðar minningar og sannkölluð hátíðarstemning Bylgjulestin í Fjölskyldu og húsdýragarðinum Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Skandinavíska merkið Ninepine komið til Lín Design Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Bylgjulestin: Sólskin og stemning í Grindavík Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Fjarfundaþjónusta Hugarafls er lífsbjörg fyrir fólk Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Endurvekja límmiðaleik Bylgjunnar Celebrating George Michael kemur til Íslands Sjá meira