Lífið

Rifu sig upp fyrir allar aldir til að mæta í þáttinn hjá Piers Morgan

Kolbeinn Tumi Daðason í Tel Aviv skrifar
Strákarnir í Hatara ásamt sjónvarpsmanni ITV á fámennri ströndinni eldsnemma í morgun.
Strákarnir í Hatara ásamt sjónvarpsmanni ITV á fámennri ströndinni eldsnemma í morgun.
Hatari mætti fyrir allar aldir í spjallþáttinn Good Morning Britain á ITV í morgun. Liðsmenn Hatara voru komnir úr keppnishöllinni á þriðja tímanum í nótt, fengu sér drykk með sínum nánustu áður en haldið var til hvílu.

Þeir sem halda að Hatari hafi sofið út geta gleymt því. Matthías Tryggvi, Klemens og Einar Hrafn rifu sig upp klukkan sex, klæddu sig í gallana og hittu fyrir Richard Aarnold, sjónvarpsmann ITV, á ströndinni í Tel Aviv.

Svör Hatarmanna voru á svipuðum nótum og svo oft áður. Klemens var spurður út í lagið og útskýrði söngvarinn að Hatrið mun sigra væri dystópía fyrir þeim. Vald og valdleysi, von og vonleysi.

„Ef við sameinumst ekki eða finnum leið að friði þá mun hatrið sigra.“

Arnold spurði strákana hvort þeir væru þeirrar skoðunar að pólitík og popp færu vel saman.

„Já, við erum þeirrar skoðunar að popp og pólitík fara hönd í hönd.“

Piers Morgan ásamt Susönnu Reid.
Arnold fullyrti í spjallinu að Hatari nyti mikilla vinsælda í Bretlandi og bauð Matthíasi að senda aðdáendum skilaboð.

„Kæru vinir í Bretlandi. Ekki gleyma að elska hvort annað því annars mun hatrið sigra.“

Að lokum gerði Arnold árangurslitla tilraun til að fá trommugimpið Einar Hrafn Stefánsson til að tjá sig og minnti um leið á að hann væri sonur Stefáns Hauks Jóhannessonar, sendiherra Íslands í Lundúnum.

Heyrðist í sjónvarpsfólkinu heima í Bretlandi skella upp úr þegar Arnold sagði að go-to svar Einars Hrafns væri líklegast douze points, tólf stig.

Mikil eftirspurn er eftir viðtölum við Hatara svo fjölmiðlafulltrúi RÚV þarf að vanda valið þegar kemur að viðtölum. Þau verða fleiri í dag enda talið nauðsynlegt að koma atriðinu í sem mesta umfjöllun til að auka líkur á góðum árangri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.