Bragðið af sumrinu hjá Te & kaffi Te og kaffi kynnir 24. maí 2019 10:45 Kristín Björg Björnsdóttir, yfirþjálfari kaffibarþjóna á Te & kaffi, lofar hressandi bragðbombum í sumar. Vilhelm
Töfrate og Appolo-frappó eru nýjustu sumardrykkirnir á Te & kaffi. Kristín Björg Björnsdóttir, yfirþjálfari kaffibarþjóna á Te & kaffi, lofar hressandi bragðbombum í sumar. „Töfrateið er stokkrósaríste með sítrónu, engifer, cayenne pipar og ætiblómi sem gefur smá myntukeim og útkoman er afar hollur og frískandi drykkur. Drykkurinn er bruggaðaður úr stokkrósalaufum sem talin eru vera rík af andoxunarefnum og steinefnum. Stokkrós er einnig talin hafa ýmis jákvæð áhrif á líkamsstarfsemina,“ segir Kristín Björg. „Við vildum búa til drykk í hollari kantinum en Töfrateið er mikil C- vítamín heilsu bomba. Það sakar heldur ekki hvað drykkurinn er fallegur og girnilegur.“Efnt var til samkeppni meðal starfsfólks Te & kaffi um nafnið á drykknum og varð Töfrate fyrir valinu. „Við erum dugleg að sækja eftir hugmyndum frá starfsfólki okkar en sú sem tók þátt í vöruþróun á drykknum vinnur á einu kaffihúsinu okkar og er dálítil norn í sér. Hún kom með vinningsnafnið „Töfrate“ sem okkur fannst mjög viðeigandi nafn á drykkinn, enda fullur af töfrum”, segir Kristín.Appolo-frappó með rjóma og súkkulaðisósu„Oft fer fram mikil tilraunastarfsemi með drykki í vöruþróunarferlinu og stundum verður útkoman allt önnur en maður bjóst við í upphafi ferlis. Appolo-frappóinn varð einmitt til út frá tilraunastússi með nammi,“ segir Kristín en í drykknum er fylltur appollo hjúplakkrís og sést gul og bleik fylling bitanna í drykknum.„Af fyllingunni er smá kókos keimur en að auki er hvítt súkkulaði síróp, tvöfaldur espresso og mjólk. Hann er svo þeyttur saman með klökum og toppaður með rjóma og súkkulaðisósu. Hann er algjört sælgæti en samt ekki sú sykurbomba sem maður heldur. Innihaldið spilar allt vel saman og þessi drykkur er tilvalinn þegar mann langar í eitthvað smá sætt og hressandi.Sjö sumarfreistingar á Te & kaffi„Alls eru sjö sumardrykkir á boðstólnum hjá Te og kaffi, en til viðbótar eru sígildir drykkir eins og íslatte, matcha smoothie, suðrænn engifer smoothie, karmellufrappó og síðast en ekki síst okkar vinsæli Oreo frappó."Karamellu frappóMatcha SmoothieSuðrænn engifer smoothieOreo frappóÞessi kynning er unnin í samstarfi við Te & kaffi. Fylgjast má með Te & kaffi á facebook og Instagram.
Matur Mest lesið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið Best að geta elt draumana saman Lífið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Laufey og Collab í eina sæng Lífið Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Lífið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Fleiri fréttir Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira