Sverrir Þór hættir óvænt með Keflavíkurliðið og Hjalti tekur við Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. maí 2019 13:00 Sverrir Þór Sverrisson. Vísir/Bára
Fljótt skipast veður í lofti í þjálfaramálum Keflvíkinga í karlakörfunni en nú er ljóst að báðir meistaraflokkar félagsins verða með nýja þjálfara á næsta tímabili. Sverrir Þór Sverrisson verður ekki með Keflavík í Domino´s deild karla í körfubolta á næstu leiktíð eins og áður hafði verið ákveðið en hann þarf að hætta með liðið vegna anna í vinnu. Hjalti Þór Vilhjálmsson verður þjálfari Keflavíkurliðsins og honum til aðstoðar verður Finnur Jónsson. Finnur hafði áður verið ráðinn aðstoðarmaður Sverris en tilkynnt var um það 8. maí síðastliðinn. Jón Halldór Eðvaldsson tekur við kvennaliði Keflavíkur af Jóni Guðmundssyni en það var líka tilkynnt 8. maí. Sverrir Þór Sverrisson þjálfaði Keflavíkurliðið í aðeins eitt tímabil en liðið endaði í fjórða sæti í deildinni og lét KR sópa sér 3-0 út úr átta liða úrslitunum. Sverrir var áður þjálfari kvennaliðs Keflavíkur en hætti með stelpurnar fyrir ári síðan eftir að hafa gert þær að tvöföldum meisturum 2017 og bikarmeisturum 2018. Hjalti Þór var aðstoðarþjálfari Inga Þórs Steinþórssonar hjá Íslandsmeistaraliði KR í vetur en hann hefur áður þjálfað Fjölni og Þór Akureyri í efstu deild. Hjalti er einnig eldri bróðir Harðar Axels Vilhjálmssonar sem hefur spilað með Keflavíkurliðinu undanfarin ár.
Dominos-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Á sársaukafullar minningar af HM Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira