Lífið

Hatara hótað öllu illu á samfélagsmiðlum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hatari stillir sér upp á úrslitakvöldinu á laugardag, áður en þau fengu athugasemdaholskefluna yfir sig.
Hatari stillir sér upp á úrslitakvöldinu á laugardag, áður en þau fengu athugasemdaholskefluna yfir sig. Getty/Michael Campanella
„Brennið í helvíti,“ „Nasistar“ og „Ég mun drepa ykkur“ er aðeins agnarsmár hluti þeirra svívirðinga sem liðsmenn Hatara sitja nú undir eftir framgöngu þeirra í Eurovision um helgina. Allt frá því að fjöllistahópurinn dró fram trefla með Palestínufánanum á úrslitakvöldinu hafa þúsundir athugasemda verið ritaðar við færslur á samfélagsmiðlareikningum sveitarinnar.

Þetta er sérstaklega greinilegt á Instagram, þar sem meðlimir Hatara hafa verið duglegir að birta myndir af ævintýrum sínum í gegnum Eurovision-ferlið. Myndir þeirra hafa hver um sig fengið hundruð athugasemda þar sem ísraelskir og palestínskir fánar eru í fyrirrúmi.

Tvær færslur frá Hatara hafa vakið langsamlega mest viðbrögð. Annars vegar mynd af Palestínufánanum sem birtist á opinberri Instagram-síðu sveitarinnar og hins vegar upptakan af því þegar ísraleskir öryggisverðir gerðu Palestínutreflana upptæka á úrslitakvöldinu. Samanlagt hafa rúmlega 63 þúsund athugasemdir verið ritaðar við færslurnar tvær, sem báðar birtust á laugardagskvöld.



 
 
 
View this post on Instagram
A post shared by HATARI (@hatari_official) on May 18, 2019 at 4:37pm PDT

Netverjar hafa þó ekki takmarkað athugasemdir sínar við myndir sem Hatarar birtu eftir að þátttaka þeirra í Ísrael hófst. Hundruð athugasemda hafa jafnframt verið ritaðar við eldri færslur frá Hatarameðlimum sem tengjast jafnvel Eurovision ekki á nokkurn hátt. Fjandmenn sveitarinnar víla til að mynda ekki fyrir sér að draga fjölskyldur liðsmanna inn í deilurnar.

„Það verður að drepa barnið með föður sínum í gasklefa og því næst brenna lík þeirra,“ ritar einn gerviaðgangur til að mynda á hebresku við mynd af dóttur Einars Hrafns Stefánssonar, trommara Hatara og Sólbjartar Sigurðardóttur, eins dansara sveitarinnar.

Þrátt fyrir hótanir í þeirra garð og áhyggjur af viðtökum ísraelskra flugvallarstarfsmanna hefur heimferð sveitarinnar gengið samkvæmt áætlun í dag. Hatari komst klakklaust í flugið sitt frá Ben Gurion-flugvelli í morgun og er hópurinn nú staddur í Lundúnum þar sem beðið er eftir flugi áfram til Íslands. Gert er ráð fyrir að Hatari og fylgdarlið verði komin til landsins klukkan 23 í kvöld.


Tengdar fréttir

Meðlimir Hatara skelkaðir eftir uppátækið

Fararstjóri íslenska hópsins í Eurovision segir einhverja meðlimi Hatara hafa verið skelkaða eftir að hljómsveitarmeðlimir héldu palestínska fánanum á lofti þegar tilkynnt var um stigin úr símakosningunni í beinni útsendingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.