Janus stórkostlegur er Álaborg tryggði sér gullið í Danmörku Anton Ingi Leifsson skrifar 9. júní 2019 15:36 Janus var frábær í úrslitakeppninni. vísir/getty
Álaborg varð danskur meistari í fjórða sinn er liðið vann oddaleikinn gegn GOG, 38-32, er liðin mættust í hreinum úrslitaleik um titilinn í Álaborg í dag. GOG vann fyrsta leik liðanna en Álaborg jafnaði metin fyrr í vikunni er liðin mættust á heimavelli GOG. Því var allt undir í Álaborg í dag. Staðan var jöfn 2-2 en þá skildu leiðir. Álaborg komst í 7-4 og 11-6 en leiddu einungis með tveimur mörkum í hálfleik 17-15 eftir mark frá Janusi Daða Smárasyni. Í síðari hálfeik hafði Álaborg allan tímann tök á leiknum. Þrátt fyrir áhlaup gestana þá náðu heimamenn að standa af sér áhlaupin og unnu að lokum með sex mörkum, 38-32. Janus Daði Smárason var algjörlega magnaður í liði Álaborgar. Hann skoraði níu mörk úr fjórtán skotum og bætti þar að auki við fjórum stoðsendingum. Ómar Ingi Magnússon var ekki í leikmannahópi Álaborgar en hann er á meiðslalistanum. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins en liðið varð tvöfaldur meistari á þessari leiktíð því einnig vann liðið bikarinn. Óðinn Þór Ríkharðsson átti einnig mjög flottan leik fyrir GOG en hann skoraði tíu mörk úr sínum tólf skotum.
Danski handboltinn Mest lesið Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Íslenski boltinn Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Fleiri fréttir Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Haukur var markahæsti leikmaður síns liðs í naumu tapi Magdeburg hafði betur í jöfnum Íslendingaslag Titilvörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu Stórleikur Donna dugði skammt Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Sjá meira