Ólsarar á toppinn | Endurkomusigur Gróttu í Safamýrinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. júní 2019 21:17 Strákarnir hans Ejubs eru komnir á topp Inkasso-deildarinnar. vísir/daníel
Víkingur Ó. er kominn á topp Inkasso-deildar karla eftir sigur á Fjölni, 1-3, í Grafarvoginum í kvöld. Ólsarar eru með 13 stig, líkt og Fjölnismenn, en betri markatölu. Þá á Víkingur leik til góða á Fjölni. Sallieu Tarawallie, Martin Kuittinen og Ívar Örn Árnason skoruðu mörk Ólsara en Albert Brynjar Ingason mark Fjölnismanna. Axel Freyr Harðarson tryggði Gróttu dramatískan sigur á Fram, 2-3, í Safamýrinni. Með sigrinum fór Grótta upp í 5. sæti deildarinnar og jafnaði Fram að stigum. Sölvi Björnsson kom Gróttu yfir strax á 4. mínútu en Fram leiddi í hálfleik, 1-2, eftir tvö mörk frá Fred Saraiva með þriggja mínútna millibili. Pétur Theodór Árnason jafnaði fyrir Gróttu á 84. mínútu og Axel Freyr skoraði svo sigurmark Seltirninga í uppbótartíma. Þróttur R. gerði góða ferð til Keflavíkur og vann 1-3 sigur á heimamönnum. Þetta var þriðji sigur Þróttara í síðustu fjórum leikjum. Daði Bergsson, Rafael Victor og Aron Þórður Albertsson skoruðu mörk Þróttar sem er í 7. sæti deildarinnar. Adam Ægir Pálsson skoraði mark Keflavíkur sem er í 6. sætinu. Keflvíkingar hafa aðeins fengið eitt stig í síðustu þremur leikjum sínum. Haukar komust upp úr fallsæti með sigri á Aftureldingu í Mosfellsbænum, 1-2. Þórður Jón Jóhannesson og Arnar Aðalgeirsson skoruðu mörk Hauka sem unnu þarna sinn fyrsta sigur á tímabilinu. Djorde Panic skoraði mark Mosfellinga sem eru í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar.Fyrr í kvöld vann Magni 3-2 sigur á Njarðvík. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Inkasso-deildin Tengdar fréttir Gunnar Örvar með þrennu í fyrsta sigri Magna Magni komst upp úr fallsæti Inkasso-deildar karla með sigri á Njarðvík. 13. júní 2019 18:55 Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira
Gunnar Örvar með þrennu í fyrsta sigri Magna Magni komst upp úr fallsæti Inkasso-deildar karla með sigri á Njarðvík. 13. júní 2019 18:55