Fjölnir á toppinn eftir stórsigur Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 29. júní 2019 16:01 Fjölnismenn setjast í toppsæti Inkassodeildarinnar Vísir/Getty
Fjölnir tók toppsæti Inkassodeildar karla af Gróttu með stórsigri á Þór á Extra vellinum í Grafarvogi. Magni náði í jafntefli gegn Víkingi Ólafsvík. Baráttan í efri hluta Inkassodeildarinnar er ótrúlega jöfn og spennandi og leikur Fjölnis og Þórs var upp á toppsætið, hefði orðið jafntefli yrðu fjögur lið jöfn á toppnum með 17 stig. Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Hermann Helgi Rúnarsson sjálfsmark strax á fyrstu mínútu seinni hálfleiks. Jóhann Árni Gunnarsson skoraði annað mark Fjölnis á 66. mínútu og undir lokin gengu heimamenn frá leiknum. Ingibergur Kort Sigurðsson skoraði glæsimark á 85. mínútu og þremur mínútum seinna skoraði varamaðurinn Jón Gísli Ström. Jón Gísli hafði verið inn á vellinum rétt um fimm mínútur. Fleiri urðu mörkin ekki og Fjölnir fer á toppinn eftir öruggan 4-0 sigur. Víkingur Ólafsvík mistókst að ná sér í mikilvæg þrjú stig þegar liðið sótti botnlið Magna heim á Grenivík. Leiknum á Grenivíkurvelli lauk með markalausu jafntefli. Fjölnir situr á toppi Inkassodeildarinnar með 19 stig. Grótta og Fram eru með 17 stig, Þór 16 og Leiknir 15 stig. Í 6. og 7. sæti sitja Keflavík og Víkingur með 14 stig. Fimm stigum munar því á toppliðinu og liðinu í sjöunda sæti þegar níu umferðir eru búnar. Upplýsingar um úrslit og gang mála eru fengnar frá Fótbolta.net.
Inkasso-deildin Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira