HSÍ kallar eftir svörum: "Strandar á almennum viðbrögðum frá ríkisstjórninni“ Anton Ingi Leifsson skrifar 27. júní 2019 07:00
Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, segir að Reykjavíkurborg sé jákvæð um að byggja nýjan þjóðarleikvang fyrir innanhúsíþróttir en málið strandi sem stendur á ríkisvaldinu. Umræða um nýjan þjóðarleikvang hefur verið mikið í umræðunni undanfarnar vikur og mánuði en margar greinar hafa verið ritaðar um málið og þrýstingur sett á stjórnvöld. Málið komst í hámæli í síðustu viku er Selfoss fékk ekki þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu vegna þess að ekkert hús á Íslandi uppfylli skilyrði Handknattleikssambands Evrópu. „Það er leitt að við getum ekki uppfyllt kröfur sem það er verið að gera til þess að leika í Evrópumótum,“ sagði Guðmundur er hann ræddi málefni handboltans í Reykjavík síðdegis í gær. „Þetta er ekki að koma fyrst upp núna. Við höfum verið að spila okkar landsleiki á undanþágu, með því að spila í Laugardalshöll. Þetta eru mismunandi kröfur eftir keppnum og Meistaradeildin í Evrópu er ein af stærstu keppnunum.“ „Þar eru gerðar lágmarkskröfur um 2.500 manna hús. Þeir voru ekki tilbúnir að veita undanþágu frá þeim kröfum sem þeir gera í því.“ „Selfoss ætlaði að fá að spila á Ásvöllum sem tekur um .2300 manns, svipað og Laugardalshöll. Síðan eru aðrar keppnir sem húsin uppfylla skilyrði svo næsta keppni fyrir neðan Meistaradeildina er EHF-keppnin. Þeir geta getað spilað í henni á Ásvöllum.“Úr landsleik í Laugardalshöll.vísir/vilhelmAðspurður hvernig menn bregðast við svona svörum frá alþjóðasamböndum í handboltanum segir Guðmundur að málið hafi verið lengi í umræðunni því Laugardalshöll væri vissulega komin til ára sinna. „Við höfum í mörg ár óskað eftir viðræðum við ríki og borg, eða sveitarfélög í nágrenninu, um uppbyggingu á þjóðarleikvangi fyrir innanhúsíþróttir.“ „Við erum ekki bara að tala um okkur í því. Þar eru einnig karfan og fleiri íþróttagreinar sem myndu njóta góðs af því. Ég hugsa þetta þannig að við gætum tekið þátt í alþjóðakeppnum í fimleikum og frjálsum og öðru slíku,“ en hvar væri best að sú nýbygging myndi rísa? „Ég held að það sé æskilegast að hún rísi í Laugardalnum og samnýta vöntun á íþróttahúsi þar fyrir félag og skóla í hverfinu. Maður þarf að hugsa upp á nýtingu á öðrum tímum en keppnirnar eru. Það væri nærtækast,“ en vill Guðmundur nýbyggingu eða væri hægt að breyta Laugardalshöll? „Ég sé fyrir mér nýbyggingu en útiloka það ekki að það gæti orðið byggt við Laugardalshöllina, að við gætum tengt það eitthvað saman. Í nútíma kröfum er verið að gera kröfur um stóra búningsklefa og annað slíkt. Ég sé það alveg fyrir mér en það þyrfti að útfæra og hugsa.“ Kostnaðurinn fyrir verkefninu liggur ekki fyrir þar sem það fer eftir því hvort að höllin verði nýbygging eða ekki. Guðmundur þekkir þar af leiðandi ekki til kostnaðarliðsins. „Ég er ekki með það á hreinu en þetta eru einhverjir milljarðar. Ástæðan fyrir því að Laugardalshöllin uppfyllir þetta ekki er að hún er orðin gömul og nú eru komnar nýjar kröfur um öryggissvæði, um auglýsingar, aðstæður fyrir fjölmiðla. Laugardalshöllin er orðin of lítil.“ „Við höfum verið að óska eftir viðræðum og reyna að fá einhver svör hjá ríkisvaldinu. Hvort að þeir væru tilbúnir að koma að þessu og að hvaða hætti. Það hefur reynst erfitt að fá svör við því.“ „Reykjavíkurborg hefur aftur á móti svarað okkur með jákvæðum svörum og hefur verið tilbúin í viðræður við ríkisvaldið. Það strandar á almennum viðbrögðum frá ríkisstjórninni hvort að hún sé tilbúin í þetta eða ekki.“Íslenska landsliðið fagnar góðum sigri.vísir/báraEftir glæsilegan árangur landsliðanna í fótboltanum undanfarin ár sneristumræðan, að einhverju leyti, síðustu ár um hvort að nýr þjóðarleikvangur fyrir fótboltann væri það sem ætti að rísa, á undan húsi fyrir innan hús íþróttir. „Ég skil alveg knattspyrnusambandið að búa í haginn fyrir sína íþrótt og þeir eru að mæta nýjum áskorunum með frábærum árangri þeirra. Það þarf að spila hér um vetur og þeir þurfa að mæta því,“ sagði Guðmundur áður en hann ítrekaði aftur þörfina fyrir innanhúss leikvangi. „Það er ekki ásættanlegt að við séum ekki með höll eða íþróttaleikvang sem getur hýst alþjóðakeppni. Við erum á undanþágu og vitum ekkert hvað þessar undanþágur gilda lengi.“ „Handboltinn er búinn að vera á stórmótum samfleytt í tólf, þrettán ár. Ég held að við höfum misst út eitt mót. Við erum enn með fremstu þjóðum í handboltanum,“ en Guðmundur segir að HSÍ kalli nú eftir svörun. „Reykjavíkurborg hefur verið jákvæð og vill skoða þetta að alvöru. Þetta kostar mikið og viljum við að ríkisvaldið segi til um hvort að þeir vilji koma að þessu og með hvaða hætti. Við köllum eftir svörum,“ sagði Guðmundur.
Íslenski handboltinn Tengdar fréttir Selfyssingar reiðir: Fáranleg framkoma við íslenskan handbolta Handknattleikssamband Evrópu, EHF, tilkynnti í morgun hvaða lið myndu spila í Meistaradeildinni á næstu leiktíð og þar er ekkert pláss fyrir Íslandsmeistara Selfoss. Menn þar á bæ eru eðlilega ekki sáttir. 21. júní 2019 10:57 Selfyssingar fengu ekki sæti í Meistaradeildinni Íslandsmeistarar Selfoss verða ekki á meðal þátttökuþjóða í Meistaradeild Evrópu í handbolta. 21. júní 2019 10:16 Guðmundur: Mikið sjokk og skýr skilaboð um að hraða þurfi umræðu um nýja höll Formaður HSÍ tjáir sig um málefni Selfoss og Laugardalshöll. 21. júní 2019 18:32 Utan vallar: Þjóðarskömmin í Laugardalnum Það virðist ekki lengur vera spurning hvort heldur hvenær landsliðin okkar í stærstu boltaíþróttunum munu þurfa að spila heimaleiki sína erlendis. Sá dagur er fyrsti heimaleikur Íslands í stórkeppni fer fram á erlendum vettvangi verður svartur dagur í íslenskri íþróttasögu. 25. júní 2019 11:30 Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Sjá meira
Selfyssingar reiðir: Fáranleg framkoma við íslenskan handbolta Handknattleikssamband Evrópu, EHF, tilkynnti í morgun hvaða lið myndu spila í Meistaradeildinni á næstu leiktíð og þar er ekkert pláss fyrir Íslandsmeistara Selfoss. Menn þar á bæ eru eðlilega ekki sáttir. 21. júní 2019 10:57
Selfyssingar fengu ekki sæti í Meistaradeildinni Íslandsmeistarar Selfoss verða ekki á meðal þátttökuþjóða í Meistaradeild Evrópu í handbolta. 21. júní 2019 10:16
Guðmundur: Mikið sjokk og skýr skilaboð um að hraða þurfi umræðu um nýja höll Formaður HSÍ tjáir sig um málefni Selfoss og Laugardalshöll. 21. júní 2019 18:32
Utan vallar: Þjóðarskömmin í Laugardalnum Það virðist ekki lengur vera spurning hvort heldur hvenær landsliðin okkar í stærstu boltaíþróttunum munu þurfa að spila heimaleiki sína erlendis. Sá dagur er fyrsti heimaleikur Íslands í stórkeppni fer fram á erlendum vettvangi verður svartur dagur í íslenskri íþróttasögu. 25. júní 2019 11:30