Hafa miklar áhyggjur af stöðunni á La Masia akademíu Barcelona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júní 2019 10:00 Lionel Messi kom upp í gegnum La Masia knattspyrnuakademíuna og varð að mögulega besta knattspyrnumanni sögunnar. Hér sést hann á fyrstu árum sínum með aðalliði Barcelona. Getty/Luis Bagu
Er La Masia knattspyrnuakademía Barcelona að deyja? Það er skoðun spænsk blaðamanns sem kannaði stöðuna á þessari frægu útungungarstöð fótboltamanna. Fyrir nokkrum árum var hvergi betra að vera fyrir ungan knattspyrnumann en í La Masia akademíu Barcelona liðsins. Aðallið Barcelona var fullt af leikmönnum sem höfðu farið í gegnum knattspyrnuakademíu félagsins og La Masia átti auk þess fjölda leikmanna í öðrum sterkum félögum. Menn eins og Lionel Messi, Xavi Hernandez, Andres Iniesta, Sergio Busquets og Gerard Pique komu allir upp í gegnum La Masia akademíu Barcelona og urðu að bestu leikmönnum heims í sinni stöðu. Á síðustu árum hefur aftur á móti orðið mikil breyting á þessari þróun. Sergi Roberto er síðasti leikmaðurinn sem fer þessa leið en hann hefur samt aldrei komist í lykilhlutverk hjá Barca. Meðal þeirra sem hafa yfirgefið unglingastarf Barcelona á síðustu árum eru synir Eiðs Smára Guðjohnsen sem eru báðir komnir yfir til Real Madrid. Það lítur út fyrir það að La Masia akademía Barcelona sé varla hálfdrættingur á við það sem hún var einu sinni. Það er því skiljanlegt að margir hafi áhyggjur af stöðunni á La Masia. Spænski blaðamaðurinn Xavi Torres kafaði dýpra ofan í þetta mál og komst að ýmsu fróðlegu um útungunarstöð Barcelona liðsins.‘LA MASIA ESTÀ MALALTA’ és el resultat d’un treball periodístic que ajudarà a entendre moltes coses que passen a can Barça. És llarg i dens -però espero que sigui útil- així que agafeu-vos-ho amb calma. Moltes gracies @ARAesports@ARAToniPadilla, per tant. https://t.co/ETZDTbrSLA — Xavi Torres (@xavitorresll) June 23, 2019Josep Maria Bartomeu, forseti Barcelona, hefur mistekist illilega að viðhalda stöðu La Masia og þá að hann hafi sett mikla peninga í ráðningu á þjálfurum, starfsmönnum og sálfræðingum. Það lítur út fyrir að hann hafi hreinlega ráðið vitlaust fólk til starfa. Masia 360 hernaðaráætlunin hans hefur klúðrast algjörlega og í stað þess að búa til leikmenn fyrir aðalliðið þá er La Masia í dag uppfull af lánsmönnum eða knattspyrnumönnum sem fáir hafa áhuga á. Það er engin straumur frá La Masia lengur, hvorki upp í aðallið Barcelona eða inn í önnur lið. Það dreymir eflaust marga um að feta í fótspor Lionel Messi sem flutti ungur frá Argentínu og blómstraði í La Masia akademíunni en nú er öldin önnur. Blaðamaðurinn Xavi Torres segir meðal annars frá því að maturinn sem strákunum er boðið upp á standist engan vegin næringarkröfur nútímans og nýir þjálfarar hafa enga reynslu af Barcelona leikaðferðinni og skilja því ekki nógu vel fyrir hvað Barcelona stendur. Það lítur því út fyrir að ein þekktasta knattspyrnuakademía heims sé að deyja og það mun örugglega taka langan tíma að snúa við þessari þróun.Rooms for players have been turned into offices Most of the players are loanees and reserves The food doesn't meet lowest nutrition standards None of the coaches know the 'Barca DNA' La Masia is in horrendous shape right now #FCBhttps://t.co/QhyKTA6cPb — GiveMeSport Football (@GMS__Football) June 26, 2019Getty/Denis Doyle
Spánn Spænski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira