Enski boltinn

Lygi­leg töl­fræði Andra toppar Haaland og Kane

Sindri Sverrisson skrifar
Andri Lucas Guðjohnsen skorar að meðaltali úr öðru hverju skoti sem hann tekur fyrir Blackburn.
Andri Lucas Guðjohnsen skorar að meðaltali úr öðru hverju skoti sem hann tekur fyrir Blackburn. Getty/Dave Howarth

Andri Lucas Guðjohnsen er væntanlega orðinn að sjóðheitri söluvöru fyrir Blackburn eftir magnaða frammistöðu sína í ensku B-deildinni í fótbolta það sem af er leiktíð.

Andri hefur farið á kostum í síðustu leikjum og skorað tvær tvennur í röð. Fyrst í grátlegu 3-2 tapi gegn WBA og svo í 2-0 sigri gegn Wrexham um síðustu helgi.

Andri hefur núna skorað átta mörk í deildinni og er þar næstmarkahæstur. Það sem vekur þó ekki síður athygli er hve fá skot Andri hefur þurft til þess að ná átta mörkum. Hann hefur nefnilega bara þurft sextán skot samkvæmt tölfræðiveitum á borð við Fotmob.

Þetta þýðir að Andri hefur skorað úr 50% skota sinna. Eins og bent var á í hlaðvarpinu Not The Top 20 Pod, þar sem áhersla er lögð á deildirnar fyrir neðan ensku úrvalsdeildina, hefur Andri með þessu skotið fremstu framherjum heims ref fyrir rass, köppum á borð við Gullboltahafann Harry Kane, Erling Haaland, Kylian Mbappé og Raphinha.

Kane hefur skorað fjögur mörk úr 31 skoti fyrir Bayern í þýsku deildinni það sem af er leiktíð, eða úr 13% skota sinna, og Haaland er með níu mörk úr 30 skotum í ensku úrvalsdeildinni svo hann hefur skorað úr 30% skota sinna.

Sá sem kemst næst Andra í bestu deildum Evrópu, af leikmönnum sem átt hafa að minnsta kosti tíu skot, er portúgalski framherjinn Gustavo Varela hjá Monza á Ítalíu sem skorað hefur sjö mörk úr sextán skotum, eða úr 44% skota sinna.

Raphinha er svo í ákveðnum sérflokki eftir heil 13 mörk úr aðeins 32 skotum fyrir Barcelona í spænsku deildinni, þó að hlutfallið hans sé samt sem áður lægra en hjá Andra eða 41%.

Andri hefur ekki bara verið stórkostlegur fyrir Blackburn heldur einnig íslenska landsliðið en hann skoraði tvö mörk og átti eina stoðsendingu í síðustu landsleikjatörn. Það styttist í næstu landsleikjatörn en Ísland sækir Búlgaríu heim 13. nóvember og tekur svo á móti Lúxemborg þremur dögum síðar í lokaumferð Þjóðadeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×