Samherji Birkis tryggði Fílabeinsströndinni sigur gegn Suður-Afríku Anton Ingi Leifsson skrifar 24. júní 2019 16:29 Kodija í landsleik með Fílabeinsströndinni. vísir/getty
Jonathan Kodija tryggði Fílabeinsströndinni 1-0 sigur á Suður-Afríku í D-riðil Afríkukeppninnar sem haldinn er í Egyptalandi um þessar mundir. Kodija er samherji Birkis Bjarnasonar hjá Aston Villa en framherjinn skoraði níu mörk í þeim 39 leikjum sem hann kom við sögu í ensku B-deildinni á síðustu leiktíð. Villa tryggði sig upp í deild þeirra bestu. Fyrri hálfleikurinn var nokkuð fjörugur þrátt fyrir að vera markalaus. Suður-Afríka fékk fínt færi á 26. mínútu er skalli Lebo Mothiba fór rétt framhjá markinu. Nicolas Pepe þrumaði boltanum í slá úr aukaspyrnu Fílabeinsstrandarinnar og mínútu síðar slapp Kodija einn gegn markverði Suður-Afríka en lét verja frá sér. Markalaust var er liðin gengu til búningsherbergja en sárafáir voru mættir til þess að fylgjast með leiknum. Fyrsta og eina markið kom hins vegar á 64. mínútu. Eftir flott spil upp vinstri vænginn, gaf Max-Alain Gradel frábæra sendingu fyrir markið þar sem Jonathan Kodija var mættur, einn á auðum sjó, og skilaði boltanum í netið. Fátt markvert gerðist það sem eftir lifði leiksins og Fílabeinsströndin er því komin með þrjú stig eins og Marokkó í D-riðlinum. Namibía og Suður-Afríka eru án stiga.
Fótbolti Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Fleiri fréttir Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met Sjá meira