Lífið samstarf

Upptekinn af tilfinningum fólks í nýrri bók

Benedikt útgáfa kynnir
Karl Ágúst Úlfsson, leikstjóri, leikari og rithöfundur hefur sent frá sér smásagnasafnið Átta sár á samviskunni.
Karl Ágúst Úlfsson, leikstjóri, leikari og rithöfundur hefur sent frá sér smásagnasafnið Átta sár á samviskunni. Vilhelm
„Þetta eru sögur úr ýmsum áttum, gamansamar sögur en í þeim öllum er þó skekkja sem setur þær út af spori raunsæis. Alvarlegur undirtónn, eitthvað skítið að gerast sem ýtir við manni og sumar þeirra eru meira að segja dálítið átakanlegar.  Ég hef alltaf verið upptekinn af tilfinningum fólks og margar persónanna eru í mikilli sálarangist, sem getur stundum verið broslegt,“ segir Karl Ágúst Úlfsson um nýjustu bók sína, smásagnasafnið Átta sár á samviskunni.

Benedikt útgáfa gefur bókina út en Karl Ágúst er nýr höfundur hjá Benedikt. Karl er þjóðþekktur fyrir leik og leikstjórn og hefur þýtt fjölda bóka og skrifað fyrir leikhús, sjónvarp og kvikmyndir. Auk þess hefur hann skrifað námsefni og hlotið Íslensku menntaverðlaunin fyrir.

Karl segir ákveðin líkindi með leikhúsinu og skáldsagnaskrifum. Átta sár á samviskunni er hans fimmta bók.

„Mannlífið kveikir sögurnar og ýmiskonar aðstæður sem venjulegt fólk ratar í, stundum eitthvað sem ég lendi í sjálfur og þykir spaugilegt. Þá hugsa ég hvað ef ég hefði verið einhver annar en ég er og tekið hlutunum öðruvísi. Ritstörf eru endalaus spuni og höfundur þarf að setja sig í spor ólíkra persóna. Starf leikarans gengur að einhverjum hluta út á það.

Sögurnar hafa orðið til á nokkurra ára tímabili, sú elsta er líklega tíu ára gömul. Ég fæ gjarnan hugmyndir milli verkefna sem hafa hentað smásagnaforminu betur og þá hef ég leyft mér að setjast niður og leggja drög að sögu. Síðasta vetur dvaldi ég á Akureyri að stórum hluta og þá gafst mér næði til þess að klára margar þeirra og bæta nýjum við,“ segir Karl.

Þessi kynning er unnin í samstarfi við Benedikt útgáfu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.