Bæta þurfi skilyrði til barneigna Lovísa Arnardóttir og Kristinn Haukur Guðnason skrifar 11. júlí 2019 09:00 Fæðingartíðni er í sögulegu lágmarki hér á landi. Vísir/Getty „
Fæðingartíðnin hér á landi er nú í sögulegu lágmarki en hún er nú á milli 1,7 og 1,8 börn á ævi hverrar konu. Hún hefur yfirleitt verið há á Íslandi miðað við önnur Evrópulönd, eða í kringum tvö börn á hverja konu frá því upp úr 1980,“ segir Ólöf Garðarsdóttir, prófessor í félagssögu á menntavísindasviði Háskóla Íslands, í samtali við Fréttablaðið. Hún segir að það megi í þessu samhengi þó ekki gleyma því að ástæðan fyrir því að íbúum hefur ekki fækkað, þrátt fyrir að fæðingartíðni hafi lækkað, sé að fólk lifir miklu lengur í dag en áður. Lífslíkur eru með þeim hæstu hér á landi. Árið 2018 var meðalævilengd karla 81,0 ár og meðalævilengd kvenna 84,1 ár á Íslandi. Hún segir að með tilliti til, sem dæmi, framleiðni sé það vissulega ókostur. Með því að reikna framfærsluhlutfall [e. Dependecy ratio] sé hægt að sjá hversu margir aldraðir og börn eru að baki hverjum vinnandi einstaklingi. Hlutfallið fæst með því að reikna hlutfall fólks á eftirlaunaaldri plús börn af öllum vinnandi. Hér á Íslandi er hlutfallið 0,649. Sé hlutfallið 1 þýðir það að jafnmörg eru ekki vinnandi og þau sem eru vinnandi.Ólöf GarðarsdóttirÓlöf segir að ef litið er á fæðingartíðni með tilliti til þeirra lífsgæða sem við lifum við og framleiðni í samfélaginu þá sé mögulega tilefni til að hafa áhyggjur af lækkandi fæðingartíðni. Spurð hvort innflutningur á fólki myndi leysa vandann segir Ólöf að í mörgum Evrópulöndum grundvallist hagvöxtur að verulegu leyti á aðfluttu vinnuafli. Þetta eigi augljóslega við um Ísland um þessar mundir. Það sé þó mikill misskilningur að fæðingartíðni hækki við það að innflytjendum fjölgi, það er fólki ekki endilega ofarlega í huga að bæta við sig barni þegar það flytji búferlum milli landa. Hér á landi eru flestir innflytjendur frá austanverðri Evrópu þar sem fæðingartíðnin sé mun lægri en hér á landi, innflytjendur hér á landi eignast þannig mun færri börn en Íslendingar. Hún segir að það sem myndi helst leiða til hækkaðrar fæðingartíðni, hér á landi, miðað við reynslu annarra landa, væri að hækka aftur fæðingarorlofsþakið og að lengja fæðingarorlofið og leitast við að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Hámarksgreiðsla í fæðingarorlofi var lækkuð verulega í kjölfar efnahagshrunsins 2008 en hefur nú verið hækkuð og stendur núna í 600 þúsund krónum. Fæðingarorlof er alls níu mánuðir, en félags- og barnamálaráðherra tilkynnti fyrr á árinu að það yrði tíu mánuðir um næstu áramót. Ólöf segir að greiðsluhámarkið geti skipt sköpum fyrir fólk. Sérstaklega þegar litið er til þess að fólk eignast almennt börn seinna um ævina og sé þá að eignast börn í miðjum starfsframa. Þá finnist því síður eins og það geti lækkað ráðstöfunartekjur. Heildarlaun voru að meðaltali 721 þúsund árið 2018. Miðgildi var 632 þúsund og algengustu mánaðarlaun voru 550 til 600 þúsund í fyrra. Ólöf segir að þrátt fyrir að fæðingartíðni hafi lækkað hérlendis þá sé hún þó enn há í samanburði við fæðingartíðni annars staðar í Evrópu. Hún hafi lengi verið mjög lág í mörgum löndum í Evrópu og nefnir sem dæmi Þýskaland. Þar hafi fæðingartíðni dottið niður í 1,3 börn á ævi hverrar konur í kringum 1970. Það er áhugavert að þar hækkaði fæðingartíðnin fyrir nokkrum árum þegar Þjóðverjar breyttu fæðingarorlofslöggjöfinni að norrænni fyrirmynd. Á Portúgal, Spáni og Ítalíu sé hún afar lág, á bilinu 1,2-1,3 og hafi verið þar síðan 1990. „Það er auðvitað engan veginn nóg til að viðhalda mannfjöldanum. Þar hefur ævilengdin líka lengst þannig að sum þessara landa eru í talsvert miklum erfiðleikum,“ segir Ólöf.Ólafur Þór Gunnarsson.Fréttablaðið/Sigtryggur Ari.Öldrun þjóðarinnar úrlausnarefni Nýlega birti Hagstofan tölur um meðalævilengd Íslendinga og fer hún sífellt hækkandi. Árið 2018 var meðalævilengd íslenskra karla 81 ár en kvenna rúmlega 84 sem er með því hæsta í Evrópu. Á síðustu 40 árum hefur meðalævilengdin hækkað um 10 ár. Á sama tíma hefur frjósemi lækkað skarpt, úr 2,9 börnum á hverja konu í 1,7. Gefur því augaleið að þjóðin eldist hratt með tilheyrandi vandamálum. „Við erum ekki enn komin í vandræði út af þessu,“ segir Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður Vinstri grænna og öldrunarlæknir, í samtali við Fréttablaðið. „Við erum svo lánsöm að hafa lífeyriskerfi sem er að stærstum hluta fjármagnað af sparnaði einstaklinganna sjálfra. Þess vegna erum við ekki með alveg sömu vandamál og þar sem lífeyriskerfið er fjármagnað með öðrum hætti.“ Það sem lendir á okkur er hins vegar að fjármagna heilbrigðisþjónustu fyrir þjóðina sem verður sífellt eldri. Bæði spítalaþjónustu og fjölgun hjúkrunarrýma. „Eldra fólk er samt heilsuhraustara en áður,“ segir Ólafur. „Þau krónísku heilsufarsvandamál sem fylgja öldrun byrja nú seinna en áður. En fjöldinn sem þarf á heilbrigðisþjónustu að halda mun samt aukast. Árið 2060 munu verða á þriðja tug þúsunda yfir 85 ára aldri.“ Lífeyrismálin hafa einnig verið til umræðu og nefnir þingmaðurinn Óli Björn Kárason vandann „tifandi tímasprengju“. Ólafur vill ekki ganga svo langt. „Þetta er alveg klárlega úrlausnarefni sem við þurfum að finna lausn við. Umræðan um að seinka lífeyristökualdrinum handvirkt var rædd í þingnefnd fyrir nokkrum árum en umræðan hefur ekki verið í gangi síðan. Þessi frétt Hagstofunnar er áminning til okkar um að við þurfum að hugsa um þessi mál,“ segir Ólafur. Nefnir hann að ein leiðin gæti verið að dreifa lífeyristökualdrinum og það sé þegar hafið að einhverju leyti. Lausnin gæti verið að sumir taki lífeyri 65 ára eða yngri en aðrir jafnvel ekki fyrr en um 75 ára aldurinn. 67 ára viðmiðið hafi verið sett þegar fólk lifði skemur og var heilsuveilla en nú. Nokkrar leiðir til að rétta hlutfallið af hafa verið nefndar. Ein er innflutningur vinnuafls og tekur Ólafur undir að hann sé nauðsynlegur í sumum geirum. Önnur er stytting menntunar en Ólafur telur hana ekki rétta. Frekar ætti að auka við endurmenntun og sveigjanleika. En hvað getum við gert til að fjölga barneignum? „Til dæmis lengja fæðingarorlofið sem við höfum verið að gera. Einnig að brúa umönnunarbilið frá lokum fæðingarorlofs til leikskóla og gera fólki kleift að sinna börnum, til dæmis þegar þau eru veik. Allt hefur þetta áhrif.“
Birtist í Fréttablaðinu Börn og uppeldi Fæðingarorlof Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Játar innbrot í búin Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fleiri fréttir Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sjá meira