Rifti samningi sínum við Keflavík og vill komast út Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júlí 2019 09:30 Gunnar Ólafsson treður boltanum í körfuna á síðasta tímabili. Vísir/Bára
Íslenski landsliðsmaðurinn Gunnar Ólafsson hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Keflavík í Domino´s deild karla í körfubolta. Gunnar er á fullu að æfa með íslenska körfuboltalandsliðinu þessa dagana en hann er líka að leita sér að nýju félagi til að spila með á komandi tímabili. Gunnar staðfesti það í samtali við Morgunblaðið að hann hafi rift samningi sínum við Keflavík. Gunnar Ólafsson var algjör lykilmaður með Keflavíkurliðinu í fyrra en hann kom aftur til liðsins eftir að hafa verið í þriggja ára námi með St. Francis-háskólanum í New York í Bandaríkjunum. „Markmiðið er að spila erlendis á næstu leiktíð og ég er í raun bara að vinna í því núna að koma mér út,“ sagði Gunnar í samtali við mbl.is. „Þessi ákvörðun mín að yfirgefa Keflavík hefur ekkert með það að gera að Sverrir hafi hætt með liðið. Ég rifti mínum samningi daginn áður en Sverrir sagði upp, þannig að það var í raun bara tilviljun að þetta skyldi hittast svona á,“ sagði Gunnar. Sverrir Þór Sverrisson hætti óvænt með Keflavíkurliðið í sumar og Hjalti Þór Vilhjálmsson, eldri bróðir Harðar Axels Vilhjálmssonar tók við liðinu í staðinn. Gunnar Ólafsson var næststigahæsti íslenski leikmaðurinn hjá Keflavík á síðasta tímabili með 14,1 stig að meðaltali í leik en hann var einnig með 3,9 fráköst og 2,0 stoðsendingar í leik.
Dominos-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira