Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás á skemmtistað í Kópavogi Kristín Ólafsdóttir skrifar 1. ágúst 2019 07:26 Þá var lögreglu tilkynnt um hópslagsmál í miðbænum í nótt. vísir/vilhelm
Einn var handtekinn vegna líkamsárásar á skemmtistað í Kópavogi um klukkan hálf eitt í gærkvöldi. Árásarmaðurinn var vistaður í fangaklefa en þolandi fluttur með sjúkrabíl á slysadeild til aðhlynningar, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Samtals voru 75 mál skráð hjá lögreglu frá því klukkan fimm í gær og þangað til fimm í morgun. Þá var tilkynnt um fimm einstaklinga að slást í miðbænum um klukkan þrjú í nótt. Slagsmálin voru yfirstaðin þegar lögregla kom á vettvang. Um klukkan ellefu í gærkvöldi barst lögreglu tilkynning um mann sem var að klifra upp á svalir og fór inn í íbúð í fjölbýlishúsi í Hlíðunum. Ekki reyndist um innbrotsþjóf að ræða eins og talið var í fyrstu heldur hafði húsráðandi læst sig úti. Skömmu eftir miðnætti var tilkynnt um ölvaðan mann í miðbænum sem stokkið hafði upp á bifreið og hoppað á þaki hennar svo tjón hlaust af. Maðurinn var farinn þegar lögregla kom á vettvang. Þá tilkynnti húseigandi í Garðabæ ummerki um tilraun til innbrots í hús sitt til lögreglu. Talið er að brotist hafi verið inn á meðan húseigandinn var á ferðalagi. Á ellefta tímanum var tilkynnt um innbrot í íbúð í fjölbýlishúsi í Garðabæ. Um klukkan hálf átta var svo tilkynnt um eld í ruslagámi í Breiðholti. Slökkvilið kom á vettvang og slökkti eldinn. Á sjötta tímanum varð þriggja bíla árekstur í Grafarvogi. Ekki urðu alvarleg slys á fólki.
Kópavogur Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Erlent Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Innlent Íranir skjóta á Ísrael Erlent Marius látinn laus Erlent Drengurinn fannst heill á húfi Innlent Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu Innlent Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Innlent Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Erlent „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira