Ásgeir hættir sem forstjóri HS Orku Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. ágúst 2019 13:04 Ásgeir Margeirsson er fráfarandi forstjóri HS Orku og stjórnarformaður Vesturverks, sem áformar Hvalárvirkjun. Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.
Ásgeir Margeirsson hættir sem forstjóri HS Orku. Þetta var tilkynnt á starfsmannafundi í dag. Í tilkynningu segir að stjórnin hafi komist að þessu samkomulagi við Ásgeir. hann muni þó gegna starfinu þangað til nýr forstjóri hefur verið ráðinn. „Ég mun kveðja samstarfsfólk mitt með stolti. Að baki eru 6 ánægjuleg ár þar sem ég hef leitt þetta félag í gegnum verulegar áskoranir og mikið vaxtaskeið. Nýr forstjóri mun taka við góðu búi, framundan eru mikilvæg og umfangsmikil verkefni svo sem að ljúka framkvæmdum og gangsetja Brúarvirkjun, framkvæmdir við stækkun Reykjanesvirkjunar um 30 MW og endurnýjun og stækkun í orkuveri félagsins í Svartsengi. Um leið og ég þakka samstarfsmönnum frábært samstarf óska ég félaginu allrar velgengni í framtíðinni," segir Ásgeir í tilkynningunni. Ásgeir Margeirsson hefur setið í stjórn HS Orku og Hitaveitu Suðurnesja frá 2007 og verið stjórnarformaður HS Orku frá 2010. Hann tók við sem forstjóri í janúar 2014. „Ásgeir hefur um langa hríð verið lykilmaður í íslenska orkuiðnaðinum og leitt fyrirtækið farsællega í gegnum mikið breytingaskeið. Eftir stendur myndarlegt fyrirtæki og góður árangur þess hefur endurspeglast í ríkum áhuga á félaginu jafnt frá lánveitendum og fjárfestum. Stjórn HS Orku þakkar Ásgeiri sérstaklega fyrir störf hans í þágu félagsins," segir Bjarni Þórður Bjarnason, stjórnarformaður HS Orku.
Orkumál Vistaskipti Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Sjá meira