Setur pressu á gamla liðið sitt: Mesti skandall í sögu kvennaknattspyrnu á Íslandi ef Valur vinnur ekki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. ágúst 2019 14:45 Arna Sif Ásgrímsdóttir. Vísir/Bára
Arna Sif Ásgrímsdóttir, fyrirliði Þór/KA, er yfirlýsingaglöð í viðtali við fótboltavefinn fotbolti.net en hún fór í spjall eftir að hún var valin besti leikmaður 14. umferðar Pepsi Max deildar kvenna. Arna Sif segist ekki hafa verið ánægð með sína spilamennsku í sumar en hún skoraði tvö mörk í 3-1 sigri á Keflavík í síðasta leik. Arna Sif er á sínu öðru tímabili með Þór/KA eftir að hún kom aftur úr atvinnumennsku á Ítalíu. Hún lék þar á undan í tvö ár með Val og þekkir því mjög vel til hjá Hlíðarendaliðinu. Athygli vekja ummæli hennar um Valsliðið en meðan Arna lék með Valsliðinu þá enduðu Hlíðarendakonur í þriðja sæti bæði árin. Valur og Íslandsmeistarar Breiðabliks hafa verið með yfirburðarlið í Pepsi Max deildinni í sumar og há liðin tvö harða keppni um Íslandsmeistaratitilinn. Arna Sif er hins vegar á því að Valur eigi að vinna þetta. Valsliðið er eins og er með tveggja stiga forystu á Breiðablik en er líka með mun betri markatölu. Liðin eiga eftir að mætast á heimavelli Blikanna. „Fyrir mér væri það einhver mesti skandall í sögu kvennaknattspyrnu á Íslandi ef Valur myndi ekki taka þetta. Þær eru með svo rosalegt lið," sagði Arna Sif sem er þó ekki tilbúin að afskrifa Blikaliðið í þessum hálfgerða úrslitaleik sem er framundan. Það má lesa allt viðtalið við hana hér.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Enski boltinn Þakklátur Klopp fyrir ríginn: „Ég sakna hans“ Enski boltinn Fjölmargir borguðu sig inn á langþráða æfingu Fótbolti „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ Handbolti Dagskráin í dag: Formúla, frábærir leikir í enska og uppgjör frægra í Doc Zone Sport Óli Óla: Við getum alveg eins hrokkið upp af á morgun Körfubolti Uppgjör: Grindavík - Keflavík 104-92 | Ekkert stöðvar Grindvíkinga Körfubolti Kristian fiskaði rautt og fékk svo rautt Fótbolti „Tækifæri fyrir aðra að stíga upp og sýna sig“ Handbolti Fá ekki hollensku stjörnuna til að yfirgefa rándýra hótelsvítu Fótbolti Fleiri fréttir Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Sjá meira