Gunnar Karl og Ísak unnu Haustrallið Bragi Þórðarson skrifar 15. september 2019 23:30 Gunnar Karl og Ísak keyrðu hratt og örugglega. Mistakalaus akstur þeirra skilaði þeim sigri um helgina. Sæmundur Eric Erlendsson
Mikil rigning og bleyta mætti keppendum í síðustu keppni Íslandsmótsins í ralli um helgina. Eftir talsverð afföll voru það Gunnar Karl Jóhannesson og Ísak Sigfússon sem stóðu uppi sem sigurvegarar. Nýkríndir Íslandsmeistarar, Baldur Arnar Hlöðversson og Heimir Snær Jónsson, urðu frá að hverfa strax á fyrstu leið eftir að hægra framhjól datt undan Subaru bifreið þeirra. Þeir félagar voru þó ekki svo ósáttir þar sem þeir tryggðu sér titilinn í síðustu keppni. Í rallinu voru eknar fjórar ferðir um Djúpavatnsleiðina á Reykjanesi. Aðstæður voru mjög blautar og krefjandi og að lokum kláruðu aðeins 11 áhafnir af þeim 20 sem ræstu. Með sigrinum um helgina enda Gunnar Karl og Ísak í öðru sæti til Íslandsmeistara og þriðju eru Skafti Svavar Skúlason og Gunnar Eyþórsson. Þeir síðarnefndu náðu öðru sætinu í Haustrallinu en enduðu tæpum fimm mínútum á eftir Gunnari og Ísak. Í flokki aflminni bíla, svokölluðum AB Varahluta flokk, unnu Halldór Vilberg Ómarsson og Valgarður Thomas Davíðsson aðra keppnina í röð. Það dugði þó ekki til Íslandsmeistaratitils og voru það Jósef Heimir Guðbjörnsson og Guðni Freyr Ómarsson sem tryggðu sér titilinn í flokknum með fimmta sætinu um helgina. Titillinn er sá fyrsti fyrir Jósef en Guðni á að baki þrjá aðra titla í flokknum.
Akstursíþróttir Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport „Þetta er alveg ótrúlegur grís“ Sport Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti „Fannst ég mjög ryðgaður ef ég á að vera alveg hreinskilinn“ Sport Juve hent út úr bikarnum í vel heppnaðri hefndartilraun Fótbolti Gæti verið valinn fyrstur í nýliðavalinu en líka endað í tuttugu ára fangelsi Sport Meistararnir stöðvuðu Mosfellinga Handbolti Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti Heillaður af Hollandi og lætur ekki háan verðmiða trufla sig Fótbolti Fleiri fréttir Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira