Lífið

RÚV stað­­festir þátt­töku Ís­lands í Euro­vision og svona verður fyrir­­komu­lagið í Söngva­­keppninni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hatari á sviðinu í Ísrael.
Hatari á sviðinu í Ísrael. Getty/Gui Prives
RÚV staðfesti í gær þátttöku í Eurovision söngvakeppninni sem haldin verður í Rotterdam í maí á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá RÚV.

Íslenska undankeppnin, Söngvakeppnin, verður haldin í febrúar 2020 og þá kemur í ljós hver verður fulltrúi Íslands í keppninni og fylgir eftir gengi Hatara sem endaði í 10. sæti í Tel Aviv í vor. Sumir bjuggust jafnvel við að Íslendingum yrði refsað fyrir athæfi Hatara þegar meðlimir sveitarinnar flögguðu fána Palistínu á lokakvöldinu í Tel Aviv í vor. Nú er það staðfest að Ísland tekur þátt í Hollandi en það er ennþá spurning hvort RÚV þurfi að greiða sekt fyrir atvikið í Tel Aviv.

Á hádegi í dag verður opnað fyrir innsendingar laga í Söngvakeppnina 2020 á slóðinni songvakeppnin.is.

Tíu lög komast í keppnina og verða þau valin með sama hætti og í fyrra. Öllum gefst kostur á að senda inn lög, sem sérstök valnefnd, skipuð fulltrúum FTT, FÍH og RÚV gefur umsögn um.

Skora á lagahöfunda að senda inn

Einnig verður leitað til reyndra og vinsælla lagahöfunda um að semja nokkur laganna en þetta var einnig gert í síðustu undankeppni.

„RÚV og framkvæmdastjórn keppninnar hvetja alla laga- og textahöfunda landsins til að senda inn lög og halda þannig áfram að móta tónlistarsögu Íslands. Söngvakeppnin snýst um fjölbreytni og eru allar tónlistartegundir velkomnar. Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti þann 17. október nk. og í janúar á næsta ári verður svo tilkynnt hvaða lög taka þátt í þessum stærsta sjónvarpsviðburði ársins,“ segir í tilkynningunni.

Eins og í fyrra verður breski danshöfundurinn Lee Proud listrænn stjórnandi og danshöfundur keppninnar. Hann hefur undanfarin ár stýrt nokkrum af stærstu söngleikjum landsins. Kristjana Stefánsdóttir söngkona verður söng- og raddþjálfari keppenda en hún hefur áralanga reynslu af söng og söngkennslu.

Undankeppnirnar tvær verða haldnar í Háskólabíói 8. og 15. febrúar og úrslitin í Laugardalshöll 29. febrúar 2020. Á síðustu árum hafa erlendar stórstjörnur úr Eurovision heiminum troðið upp í Höllinni á úrslitakvöldinu, Eleni Foureira, Alexander Rybak, Loreen, Robin Bengtsson, Måns Zelmerlöw og fleiri. Á því verður engin breyting í næstu keppni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.