Malmö og FC Kaupmannahöfn gerðu jafntefli í skandinavískum grannaslag í Evrópudeildinni í kvöld.
Gestirnir frá Kaupmannahöfn komust yfir undir lok uppbótartíma fyrri hálfeiks þegar Lasse Nielsen lenti í því að skora sjálfsmark.
Malmö jafnaði metin snemma í seinni hálfleik með marki frá Markus Rosenberg eftir fyrirgjöf Jo Inge Berget.
Arnór Ingvi Traustason byrjaði leikinn á bekknum en kom inn á 58. mínútu leiksins.
Jafnt í nágrannaslagnum í Malmö
