Segir tollaeftirlit á Írlandi óhjákvæmilegt á Írlandi eftir Brexit Samúel Karl Ólason skrifar 1. október 2019 15:29 Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands. EPA/NEIL HALL
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir að eftir úrgöngu Bretlands verði einhvers konar tolleftirlit vegna landamæra Írlands og Norður-Írlands. Hann þvertekur þó fyrir að það muni fela í sér hefðbundið landamæraeftirlit, eins og Írar vilja ekki. Slík landamæri gætu grafið undan friðarsamkomulaginu sem kennt er við föstudaginn langa. Þá sagði Johnson að Bretland færi úr ESB í lok mánaðarins hvort sem það væri án samkomulags eða með. Það er þrátt fyrir að breskir þingmenn samþykktu lög í síðasta mánuði sem fólu í sér að Johnson þyrfti að semja við forsvarsmenn ESB um frest á Brexit. Þetta kom fram í máli Johnson í útvarpsviðtali í dag, en deilan um landamæri Írlands og Norður-Írlands og nokkurs konar bakdyr inn í Evrópusambandið hefur hingað til komið í veg fyrir Brexit.Fregnir hafa borist af því að ríkisstjórn Johnson hafi stungið upp á því að eftirlitsstöðvar yrðu reistar í nokkurra kílómetra fjarlægð frá landamærunum en Johnson sagði það kolrangt. Forsætisráðherrann neitaði að segja frá „mjög góðri“ áætlun sinni og sagði að hún yrði opinberuð síðar.Jean-Yves Le Drian, utanríkisráðherra Frakklands, sagði í dag að líklegasta niðurstaðan í Brexit-deilunum væri að Bretland færi úr Evrópusambandinu, án samkomulags, þann 31. október. Þetta sagði hann á franska þinginu. Í samtali við Reuters sagði einn af erindrekum ESB að sambandið væri tilbúið til viðræðna. „Kamikaze-aðferð“ Johnson hjálpaði þó ekki til.
Bretland Brexit Evrópusambandið Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Sjá meira