Vilja ekki að kvenkyns starfsmenn noti gleraugu Sylvía Hall skrifar 8. nóvember 2019 20:04 Konur í Japan hafa gagnrýnt þær útlitslegu kröfur sem gerðar eru til kvenna þar í landi. Vísir/Getty
Fjölmiðlar í Japan greina frá því að nokkur fyrirtæki þar í landi hafi bannað kvenkyns starfsmönnum í þjónustustörfum að ganga með gleraugu. Ástæðan er sögð vera sú að gleraugun geri þær viðmót þeirra kuldalegra. Þetta kemur fram í frétt BBC en þar segir að málið hafi nú þegar orðið til þess að umræður hafi skapast um þær kröfur sem gerðar eru til kvenna í landinu. Til að mynda sé það nánast óskrifuð regla að konur þurfi að klæðast hælaskóm þegar þær sækja um störf. „Konur eru metnar að mestu eftir útliti þeirra,“ segir Kumiko Nemoto, prófessor í félagsfræðum við háskóla í Kyoto. Hún segir málið snúast alfarið um kyn og þær mismunandi kröfur sem samfélagið gerir til kynjanna. Frammistaða kvenna í starfi skipti minna máli en útlit þeirra. Ekki er vitað hvort umrætt gleraugnabann sé í vinnureglum þeirra fyrirtækja sem um ræðir eða hvort það sé frekar óskrifuð regla sem kvenkyns starfsmenn þurfi að fylgja. Dæmi eru um að fyrirtæki hafi borið fyrir sig öryggisástæður og sagt að til að mynda sé það öruggara fyrir starfsmenn flugfélaga að nota ekki gleraugu. Miklar umræður skapast um málið á samfélagsmiðlum og hafa konur í kjölfarið tjáð sig um þá pressu sem þær finna fyrir á vinnustöðum. Þá þykja ummæli heilbrigðis- og vinnumálaráðherra landsins um að konur ættu að vera skyldugar til þess að klæðast háum hælum á vinnustaðnum vera til marks um ríkjandi viðhorf í garð kvenna þar í landi.
Japan Mest lesið Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira