Viðskiptastríð Bandaríkjanna og Kína hefur dregið úr hagvexti um allan heim, mest í ríkjunum tveimur, en einnig á Íslandi. Spá Seðlabankans sem birt var í dag gerir ráð fyrir að verðbólga verði komin í markmið hans fyrir áramót.
Stýrivextir hafa verið lækkaðir um 1,5 prósentur frá því vor og standa nú í 3 prósentum. Flestar aðrar kennitölur í peningamálum bankans horfa hins vegar til verri vegar. Þannig er áfram spáð 0,2 prósenta samdrætti í hagvexti á þessu ári og að hann vaxi minna á næsta ári en spár gerðu ráð fyrir, eða um 1,6 prósent í stað 1,9 prósenta.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að samdrátt megi rekja til minni útflutnings vegna falls WOW, minni útflutnings áls, sjávarvarafurða vegna loðnubrests og viðskiptadeilna Bandaríkjanna og Kína.
„Þær virðast vera að draga niður hagvöxt í öllum heiminum nokkuð jafnt. Þá hefur það líka áhrif á okkur. Við erum lítið opið hagkerfi sem er náttúrlega háð því að flytja út vörur og þetta er að hafa neikvæð áhrif á okkur líka,“ segir Ásgeir.
En eins og sjá má á rauðu línunni hefur hagvöxtur lækkað úr 7 prósentum árið 2017 í 0,2 prósent á þessu ári.
„Þannig að þetta skiptir töluvert miklu máli fyrir okkur. Við að einhverju leyti óttumst að þessar spár sem við gefum út núna séu of bjartsýnar ef horfur úti versna,“ segir seðlabankastjóri.
Viss sárabót felst hins vegar í lækkun vaxta.
Vextir í heiminum eru í sögulegu lágmarki um þessar mundir. Eftir að Seðlabanki Íslands lækkaði stýrivexti um 0,25 prósentur í dag hafa stýrivextir og raunvextir á Íslandi aldrei verið lægri.
Ásgeir segir lækkanir stýrivaxta hafa skilað sér með lægri vöxtum upp á um 0,6 prósentur til heimila og fyrirtækja. En merki séu um samdrátt í útlánum, sem þurfi að auka til nýrra atvinnugreina.
„Við vonumst til þess að þessi vaxtalækkun muni koma fram á næsta ári í aukinni fjárfestingu. Við sjáum störf skapast í tengslum við lægri fjármagnskostnað og spár bankans gera ráð fyrir því,“ segir Ásgeir Jónsson.

