Seinni bylgjan: Alvöru blásari og alvöru ástríða hjá Snorra Steini Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. nóvember 2019 10:00 Snorri Steinn Guðjónsson stýrði Valsliðinu til sigurs á móti ÍR. Vísir/Daníel
Tímabilið hefur ekki byrjað vel hjá Valsmönnum í Olís deild karla í handbolta og pressan hefur verið að aukast á Snorra Stein Guðjónsson þjálfara. Leikurinn á móti ÍR í síðustu umferð var lykilleikur í að snúa því við og það sáu Seinni bylgju menn á þjálfara Hlíðarendaliðsins. „Við eigum Snorra Stein Guðjónsson. Hann var í essinu sínu eftir að Agnar Smári Jónsson fékk tvær mínútur fyrir vitlausa skiptingu,“ sagði Henry Birgir Gunnarsson, umsjónarmaður Seinni bylgjunnar. „Snorri Steinn byrjar á því að láta Hlyn eftirlitsmann og Jón Karl dómara heyra það og svo lætur hann Agga heyra það fyrir vitlausu skiptinguna,“ sagði Henry og á meðan sjáum við þjálfara Valsmanna missa sig fyrir framan Agnar Smára. „Þetta er alvöru blásari þarna hjá karlinum og hann er ekki búinn. Þetta er alvöru ástríða,“ sagði Henry Birgir. Snorri Steinn endaði þetta reiðikast síðan á því að sparka brúsa í burtu. „Ég held að þetta lýsi því svolítið hvað var mikið undir í þessu. Þetta var gríðarlega mikilvægt móment og þetta voru fáránlegar tvær mínútur,“ sagði Guðlaugur. „Þetta voru alveg fáránlegar tvær mínútur því þeir voru komnir í dauðafæri hinum megin og þá kom flautið og allt varð vitlaust,“ sagði Halldór Jóhann Sigfússon og bætti við. „Þetta er bara ástríða og svona viljum við hafa þetta. Snorri vildi virkilega vinna þennan leik og það fór ekkert á milli mála,“ sagði Halldór Jóhann. Það má sjá allt innslagið og öll viðbrögðin hjá Snorra Stein í myndbandinu hér fyrir neðan.Klippa: Seinni bylgjan: Snorri Steinn missti sig
Olís-deild karla Seinni bylgjan Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Sara Björk komin heim Sport Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Körfubolti Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Fleiri fréttir Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Sjá meira