Jólaterta sem lætur jólin koma Elín Albertsdóttir skrifar 27. nóvember 2019 18:00 Sylvía er að byrja með nýja þætti á Stöð 2 Maraþon, þar mun hún baka fyrir landsmenn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Jólin eru í miklu uppáhaldi hjá Sylvíu Haukdal Brynjarsdóttur sem er einstaklega hæfileikarík þegar kemur að bakstri. Hún bakaði jólatertu fyrir lesendur sem er ekki bara falleg heldur einstaklega góð. Sylvia starfar við áhugamálið hjá Sætum syndum og er með eigin uppskriftarvef undir nafninu sylviahaukdal.is sem vakið hefur mikla athygli. Þá hefur hún einnig stóran hóp fylgjenda á Instagram. Sylvía er yngri systir Birgittu Haukdal, söngkonu og barnabókahöfundar. Sylvía Haukdal er menntaður pastry chef frá matreiðsluskólanum Le Cordon Bleu í London. Það verður stór stund hjá henni í desember þegar hún byrjar með nýja þætti á Stöð 2 Maraþon sem nefnast Bakað með Sylvíu Haukdal. Sylvía gefur hér uppskriftir að glæsilegri jólatertu og Bismark jólabollakökum. Hún segist hlakka mikið til að kveikja á kertum og eiga notalegar stundir með fjölskyldu sinni í eldhúsinu. Eiginmaður hennar er Atli Björgvinsson en þau eiga tvær dætur, Önnu Hrafnhildi, 4 ára og Marín Helgu sem er ársgömul. Jólakaka Sylvíu Haukdal Súkkulaðibotnar 600 g sykur 315 g Kornax hveiti 120 g kakó ¼ tsk. lyftiduft ¼ tsk. matarsódi ½ tsk. salt 3 egg 165 ml olía (grænmetis) 330 ml mjólk 330 ml heitt vatn 3 tsk vanilludropar Hún er heldur betur glæsileg jólatertan hennar Sylvíu. Handbragðið er hrein snilld og bragðið sömuleiðis mjög gott. Við byrjum á því að hita ofninn í 175°C (blástur). Næst setjum við öll þurrefnin saman í hrærivélarskál og hrærum saman. Þegar við höfum blandað þurrefnunum vel saman bætum við eggjum, mjólk, olíu, heitu vatni og vanilludropum saman við og hrærum þar til allt hefur blandast vel. Næst smyrjum við þrjú 20 cm form með olíu, setjum bökunarpappír í botninn og smyrjum aftur. Svo hellum við deginu jafnt í öll form og bökum í 20-25 mínútur eða þar til pinni kemur hreinn upp úr kökunum (mér þykir best að vigta deigið og skipta því jafnt niður í formin til þess að fá alla botna jafn stóra). Um leið og botnarnir koma úr ofninum losum við hliðarnar á formunum og hvolfum botnunum á bökunarpappír eða kæligrind.Hvítsúkkulaðikrem (á milli botna)150 g smjör (við stofuhita)150 g flórsykur200 g hvítt súkkulaði (brætt)100 g rjómaostur100 g frosin hindber Við byrjum á því að þeyta smjörið þar til það verður ljóst og létt. Síðan er flórsykri bætt saman við og þeytt þar til kremið verður hvítt og létt. Að lokum er rjómaosti hrært saman við og hvítu súkkulaði. Þegar kakan er sett saman er hindberjum stráð yfir kremið.Smjörkrem (utan um köku)500 g smjör (við stofuhita)500 g flórsykur2 tsk. vanilludropar Við byrjum á því að þeyta smjörið vel og lengi þar til það verður létt og ljóst. Næst bætum við flórsykri og vanilludropum saman við og höldum áfram að þeyta. Að lokum bætum við rjómanum saman við og þeytum í smá stund í viðbót. Fallegar Bismark jólabollakökur. Bismark jólabollakökur Súkkulaðibollakökur 125 g dökkt súkkulaði 170 ml mjólk 290 g púðursykur 105 g smjör (við stofuhita) 2 egg 180 g Kornax hveiti ½ tsk. salt ½ tsk. matarsódi ½ tsk. lyftiduft 10 g kakó Við byrjum á því að hita ofninn í 175°C (blástur). Næst setjum við súkkulaði, mjólk og helminginn af púðursykrinum í lítinn pott og hitum upp að suðu á vægum hita. Við þeytum saman smjöri og hinum helmingnum af sykrinum saman og bætum síðan eggjunum varlega saman við. Næst hrærum við þurrefnunum varlega saman við. Að lokum fer heita súkkulaðiblandan í mjórri bunu saman við. Við bökum bollakökurnar við 175°C í um það bil 18 mínútur.Bismark súkkulaði ganache150 g Bismark rjómasúkkulaði90 ml rjómi Við byrjum á því að saxa súkkulaðið í smáa bita og setjum í skál. Næst hitum við rjómann upp að suðu og hellum yfir súkkulaðið. Hrærum síðan blönduna vel saman og leyfum henni að kólna og þykkna áður en við setjum hana í bollakökurnar.Smjörkrem300 g smjör (við stofuhita)300 g flórsykur2 tsk. vanilludropar Við byrjum á því að þeyta smjörið vel og lengi þar til það verður létt og ljóst. Næst bætum við flórsykri og vanilludropum saman við og höldum áfram að þeyta. Að lokum bætum við rjómanum saman við og þeytum í smá stund í viðbót.Samsetning Við byrjum á því að gera göt í miðjuna á öllum bollakökunum. Næst sprautum við Bismark súkkulaði-ganache í gatið Svo fer krem ofan á bollakökurnar og þær skreyttar að vild.
Birtist í Fréttablaðinu Bollakökur Jólamatur Kökur og tertur Súkkulaðikaka Sylvía Haukdal Uppskriftir Mest lesið Hittu átrúnaðargoðin: Rúrik ekki miður sín þó hann vanti í ábreiðubandið Lífið Snerting á stuttlista fyrir Óskarsverðlaunin Lífið „Sundlaug“ á Sogavegi til sölu Lífið Heitustu jólagjafirnar fyrir herrann Jól Tískudrottningin biðst afsökunar á eineltinu Lífið Forsetar mættu á tilfinningaríka stund með Grindvíkingum Lífið Dætur Jóns og Friðriks Dórs stálu senunni Lífið Sigga Heimis selur slotið Lífið Tryggðu sér sigurinn í úrslitum Kviss á lokaspurningunni Lífið Bauð IceGuys upp á alvöru áskorun um helgina Lífið