Lífið samstarf

Sigraði smákökusamkeppnina með Mæru-lyst

Lífland kynnir
Mæru lyst, smákökurnar sem dómnefndin féll fyrir.
Mæru lyst, smákökurnar sem dómnefndin féll fyrir.
„Mæra er sérstakt orð sem við notum hér á Húsavík yfir sælgæti, þaðan kemur nafnið,“ útskýrir Guðný Jónsdóttir, sem sigraði smákökusamkeppni Kornax í ár með uppskrift sinni Mæru-lyst. Guðný hefur afar gaman af því að baka og er ekkert að flækja hlutina við baksturinn.



Guðný Jónsdóttir fékk glæsilega Kitchen Aid hrærivél í verðlaun auk gjafakarfa.
„Það er um að gera að hafa uppskriftirnar einfaldar og stuttar. Ég bjó þessa bara til um leið og ég hnoðaði í deigið. Tíndi ofan í skálin það sem mér finnst gott og passaði bara að hafa þetta nógu sætt. Það virðist öllum þykja smákökurnar góðar sem hafa smakkað,“ segir Guðný.

Enda hitti hún heldur betur á réttu samsetninguna. Á annað hundrað uppskriftir bárust í keppnina að þessu sinni, dómnefnd valdi tuttugu þeirra úr til frekari smökkunar og féll fyrir Mæru-lyst.

Guðný mælir með því að baka fullan kökubauk og láta hann standa á stofuborðinu alla aðventuna. Þeir sem vilja spreyta sig á Mæru-lyst fyrir jólin geta fylgt uppskriftinni hér fyrir neðan.



Mæru-lyst
 

150 g lint smjör

100 g dökkur púðursykur

100 g hrásykur

1 egg

200 g Kornax hveiti

1 tsk vínsteins lyftiduft

1 tsk matarsódi

1 tsk vanilludropar

2 tsk gróft malað hafsalt rifinn börkur af einni appelsínu

150 g Síríus karamellukurl.

Hrærið smjör, púðursykur og hrásykur vel saman. Bætið við eggi, appelsínuberki og vanilludropum og hrærið vel. Sigtið saman hveiti, vínsteins lyftiduft og matarsóda og bætið við ásamt karamellukurli og hafsalti og hrærið varlega saman við.

Setjið á bökunarplötu með lítilli teskeið, kökurnar renna dálítið út. Bakið við 180°C í 7-10 mín.

Skraut ofan á

1 poki hvítir súkkulaðidropar (um 150 g)

ca 75 g Síríus karamellukurl 

Bræðið súkkulaðidropana í vatnsbaði og setjið yfir kökurnar. Stráið karamellukurli yfir. 



Þessi kynning er unnin í samstarfi við Lífland






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.