Kafarinn segir ummæli Musk um hann ígildi lífstíðardóms

Ummæli Musk vöktu mikla athygli á síðasta ári en hann og Unsworth höfðu skipst á skotum í fjölmiðlum eftir að Unsworth, sem var einn þeirra fyrstu á vettvang við björgun tælensku fótboltastrákanna sem festust í helli á síðasta ári, sakaði Musk um að nýta sér harmleikinn fyrir athygli.
Musk svaraði með því að kalla Unsworth barnaníðing (e. Pedo guy). Var hann harðlega gagnrýndur fyrir ummælin og baðst afsökunar á þeim. Sú afsökunarbeiðni virðist þó ekki hafa verið einlæg, enda hélt Musk ásökunum til streitu, meðal annars í tölvupóstum til blaðamanns Buzzfeed, líkt og Vísir hefur áður fjallað um, sem og á Twitter.
Það varð til þess að Unsworth höfðaði meiðyrðamál á hendur Musk og er það nú til meðferðar hjá dómstólum í Los Angeles í Bandaríkjunum.Í gær baðst Musk afsökunar á ummælunum en sagði að hann hefði ekki meint þau bókstaflega.
Unsworth svaraði spurningum lögfræðinga Musk og síns eigin í nótt að íslenskum tíma. Þar lýsti hann því hvaða áhrifum tíst Musk hafi haft á líf sitt.
„Mér finnst þetta ógeðslegt,“ sagði hann um ummælin. „Ég á virkilega erfitt með að lesa þetta orð, hvað þá að tala um það.“
Sagði hann tíst Musk hafa niðurlægt sig og að ummælin hafi verið ígildi lífstíðardóms því að nú tengi almenningur sem fylgst hafi með málinu orðið við hann að því er fram kemur í umfjöllun BBC.
Tengdar fréttir

Musk þarf að mæta fyrir dóm vegna ærumeiðinga
Elon Musk, forstjóri bílaframleiðandans Tesla, hefur verið ákærður fyrir að kalla breskan kafara, sem kom drengjum sem festust í helli í Taílandi til bjargar, barnaníðing.

Musk greiddi svindlara háar fjárhæðir til að rannsaka kafarann
Elon Musk, stofnandi SpaceX og Tesla, bar vitni í meiðyrðamáli breska kafarans Vernon Unsworth gegn milljarðamæringnum í gær. Í máli Musk kom fram að hann hafi ekki meint barnaníðsummæli sín um Unsworth bókstaflega

Björgunarmaðurinn svarar ítrekuðum ásökunum Musks
Musk kallaði Unsworth, sem var einn þeirra fyrstu á vettvang við björgun tælensku fótboltastrákanna í sumar, fyrst barnaníðing í júlí.

Kafarinn lögsækir Musk vegna barnaníðsummæla
Unsworth var meðal þeirra sem stóðu að björgun fótboltastrákanna 12 og þjálfara þeirra úr Chiang Rai hellunum í Taílandi í sumar. Kafarinn hafði gagnrýnt áform Musk um að senda smákafbát á staðinn í þeim tilgangi að aðstoða við björgun drengjanna.

Elon Musk telur að kafarinn hafi misskilið barnaníðsummælin
Elon Musk, stofnandi Tesla og Space X, hefur gripið til varna í meiðyrðamáli breska kafarans Vernon Unsworth gegn bandaríska auðkýfingnum. Vörnin byggir á því að barnaníðsummæli Musk í garð Unsworth hafi ekki verið ásökun um barnaníð, heldur aðeins ætluð til þess að hæðast að kafaranum.