Á hverjum degi fram að jólum birtum við uppskrift frá Aðventumolum Árna í Árdal sem sýndir eru á Stöð 2 í desember. Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum.
Með einskærri lífsgleði og eldmóð hefur Árni sérstakan hæfileika til að hrífa fólk með sér. Hér nær hann svo sannarlega að veita áhorfendum innblástur og töfrar fram bragðgóða og spennandi rétti alla aðventuna. Aðventumolann má sjá hér í spilaranum að neðan en uppskrift og leiðbeiningar er að finna neðar í fréttinni. Aðventumolar Árna í Árdal eru á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 19.10 alla daga fram að jólum nema á föstudögum eru þeir sýndir beint á eftir Allir geta dansað.
Kvennafræðarinn eftir Elínu Briem kom út árið 1889 og var fyrsta matreiðslubókin sem náði almennri útbreiðslu á Íslandi. Samkvæmt Nönnu Rögnvaldardóttir gjörbreytti bókin í rauninni íslenskri matargerð en með henni koma dönsku húsmæðraskólaáhrifin fyrst fyrir augu almennings. Mælieiningar í bókinni eru í pundum (500 grömm), kvintum (5 grömm) og pelum (250 millilítrar) en hér eru sjö smákökuuppskriftir úr henni sem búið er að umbreyta í grömm og millilítra.
Innihald
Hefilspænir
4 egg, aðskilin
200 grömm sykur
1 teskeið sítrónudropar
100 grömm hveiti
Sykurkringlur
500 grömm hveiti
250 grömm mjúkt smjör
100 grömm sykur
100 millilítrar nýmjólk
Slegin egg til að pensla með
Perlusykur
Kanelhringir
500 grömm hveiti
100 grömm sykur
1 teskeið hjartarsalt
100 grömm mjúkt smjör
250 millilítrar mjólk
Mjólk til að pensla með
Kanilsykur
Hnetur
500 grömm hveiti
150 grömm sykur
125 grömm mjúkt smjör
4 egg
Gyðingakökur II
500 grömm hveiti
250 grömm sykur
½ hjartarsalt
250 grömm mjúkt smjör
2 egg
50 grömm hakkaðar möndlur
Slegin egg til að pensla með
Perlusykur
Prinsessukökur
250 grömm mjúkt smjör
375 grömm sykur
5 egg
375 grömm hveiti
125 millilítrar nýmjólk
Kúrenukökur
375 grömm mjúkt smjör
375 grömm sykur
6 egg, aðskilin
500 grömm hveiti
150 grömm kúrenur
100 grömm möndlur, skornar
Perlusykur
Leiðbeiningar
-
Hefilspænir - Forhitið ofn í 175°C og takið til hinar ýmsu sleifar og kefli. Hrærið eggjarauðurnar með sykrinum þar til blandan verður létt og ljós. Bætið þá sítrónudropunum og hveitinu saman við og hrærið vel saman. Stífþeytið eggjahvíturnar, hrærið þriðjunginn af þeim fyrst út í deigið og bætið svo við restinni. Smyrjið deigið þunnt út á smjörpappírsklædda bökunarplötu og bakið þar til kakan er orðin ljósgul. Skerið kökuna um leið í þumlungsþykkar ræmur. Nú þarf að hafa hraðar hendur því deigið má ekki stífna. Takið hverja ræmu og vefjið í kringum sleif eða kefli. Til að ræmurnar haldi lögun sinni þurfa þær að kólna svona uppvafðar. Ef ræmurnar verða of kaldar og stífar til að vefja þá er hægt að stinga ofnplötunni aftur inn í ofn í stutta stund til að lina þær.
-
Sykurkringlur - Forhitið ofn í 175°C. Hrærið öllum þurrefnunum saman í stórri skál. Blandið smjörinu og mjólkinni saman við og hnoðið vel saman. Mótið litlar kúlur úr deiginu, rúllið þeim í lengjur og búið úr þeim litlar kringlur. Setjið kringlurnar á bökunarpappírsklædda bökunarplötu, penslið þær með eggi og þekið með perlusykri. Bakið þar til kringlurnar eru orðnar ljósbrúnar að lit.
-
Kanelhringir - Forhitið ofn í 175°C. Hrærið öllum þurrefnunum saman í stórri skál. Blandið smjörinu og mjólkinni saman við og hnoðið vel saman. Fletjið deigið út á hveitistráðu borði. Skerið út kökur með stóru glasi og notið síðan annað minna glas til að skera miðjuna úr þeim. Færið hringina yfir á bökunarpappírsklædda bökunarplötu, penslið með mjólk og stráið kanilsykri yfir. Bakið þar til hringirnir eru ljósbrúnir.
-
Hnetur - Forhitið ofn í 175°C. Hrærið öllum þurrefnunum saman í stórri skál. Blandið smjörinu og eggjunum saman við og hnoðið vel saman. Skiptið deiginu í nokkra hluta og rúllið hverjum hluta í lengju sem er um 2 sentímetra þykk, á stærð við krónu. Skerið lengjuna í 2 sentímetra bita og færið yfir á bökunarpappírsklædda bökunarplötu. Bakið þar til bitarnir eru orðnir ljósbrúnir.
-
Gyðingakökur II - Forhitið ofn í 175°C. Hrærið öllum þurrefnunum saman í stórri skál. Blandið smjörinu og eggjunum saman við og hnoðið vel saman. Fletjið deigið út á hveitistráðu borði. Skerið út kökur með stóru glasi. Færið hringina yfir á bökunarpappírsklædda bökunarplötu og penslið með eggjum. Stráið perlusykri og möndlum yfir kökurnar og bakið þar til þær eru orðnar ljósbrúnar.
-
Prinsessukökur - Forhitið ofn í 175°C. Blandið smjöri og sykri í stórri skál og þeytið þar til það er orðið létt og ljóst. Bætið eggjunum við, einu í einu, og hrærið þar til hvert egg hefur samlagast smjörinu. Hrærið hveiti þá saman við og að lokum mjólkinni. Setjið um matskeið af deiginu á bökunarpappírsklædda bökunarplötu með um 5 sentímetra millibili. Bakið þar til kökurnar eru orðnar ljósbrúnar.
-
Kúrenukökur - Forhitið ofn í 175°C. Blandið smjöri og sykri í stórri skál og þeytið þar til það er orðið létt og ljóst. Bætið eggjarauðunum við, einni í einu, og hrærið þar til hver eggjarauða hefur samlagast smjörinu. Hrærið hveitinu þá saman við. Stífþeytið eggjahvíturnar, hrærið þriðjunginn af þeim fyrst út í deigið og bætið svo við restinni. Smyrjið deigið þunnt út á smjörpappírsklædda bökunarplötu. Stráið kúrenunum jafnt í raðir með dálitlu millibili eftir endilöngu deiginu. Stráið þá möndlunum í raðir á milli kúrenanna og stráið perlusykri yfir allt deigið. Bakið þar til kakan er orðin ljósbrún. Skerið kökuna í ferhyrninga um leið og hún kemur úr ofninum þannig að hver kaka sé bæði með eitthvað af kúrenum og möndlum.