Úrkoma um mest allt landið á morgun Atli Ísleifsson skrifar 12. maí 2020 07:17
Veðurstofan gerir ráð fyrir breytilegri og vestlægri átt í dag, þrír til átta metrar á sekúndu, með dálítilli vætu. Yfirleitt verður þó þurrt og bjart fyrir norðan og austan. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að þokkalega milt verði að deginum en þar sem fremur kalt loft sé yfir landinu frysti víða þar sem bjart er yfir. Hiti verður á bilinu tvö til tíu stig og svalast austantil. „Á morgun verður vestanáttin ákveðnari, úrkoma um mest allt land, þó líklega ekki mikil og hitinn víða 5 til 10 stig yfir daginn. Á fimmtudag og dagana þar á eftir virðist sem norðanáttin ætli að stýra veðrinu með fremur köldu veðri fyrir norðan en þokkalega mildu syðra yfir daginn. Í lok helgar er svo að sjá að mildara loft úr suðri taki svo yfir dagana þar á eftir. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Vestan 5-10 m/s og lítilsháttar rigning eða skúrir, en þurrt að kalla SA- og A-lands. Hiti 3 til 11 stig, hlýjast á SA-landi. Á fimmtudag: Vestlæg átt 3-8, rigning eða súld með köflum og hiti 5 til 10 stig, en þurrt NA-lands og hiti 0 til 5 stig þar. Á föstudag: Norðlæg eða breytileg átt, dálítil væta S til á landinu og stöku él nyrst, en annars úrkomulítið. Hiti 0 til 8 stig, mildast syðst. Á laugardag: Norðan gola. Stöku él fyrir norðan og hiti 1 til 5 stig, en léttskýjað syðra og hiti að 10 stigum yfir daginn. Á sunnudag og mánudag: Suðaustanátt, strekkingur og rigning á köflum S-lands, en annars hægari og þurrt. Hiti 5 til 10 stig, en svalara austantil.
Veður Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Sjá meira