„Því lengur sem þú sérð ekki einhvern sem þú kannt vel við því erfiðara verður það“ Anton Ingi Leifsson skrifar 14. apríl 2020 07:33 Jürgen Klopp. Getty/MB Media
Það er ljóst að hléið á Englandi vegna kórónuveirunnar er farið að hafa áhrif á knattspyrnumenn þar í landi sem og knattspyrnustjóra. Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, er byrjaður að sakna lærisveina sinna og rúmlega það. Klopp hefur þó séð sína menn í gegnum samskiptaforritið Zoom en þar hafa leikmennirnir æft „saman“, hver í sínu horni. Óvíst er hvenær sá þýski fær að sjá sína menn aftur en það eru liðnar fjórar vikur síðan þeir æfðu síðast saman á Melwood, æfingasvæði Liverpool. „Þú vilt vera með þeim og vera í kringum þá. Þú vilt vera nær þeim en þú getur verið núna. Þessar myndbandsæfingar er það næsta sem við getum verið saman, fyrir utan skilaboð sem við skiptumst á,“ sagði Klopp. 'The longer you don't see somebody you like, the more it hurts'Jurgen Klopp admits he is struggling being apart from his Liverpool squadhttps://t.co/PNUFhoBbr9— MailOnline Sport (@MailSport) April 13, 2020 „Svo mér líkar mjög vel við þessar æfingar. Þetta verður erfiðara því lengur sem þetta varir. Ég skil stöðuna 100% en því lengur sem þú sérð ekki einhvern sem þú kannt vel við því erfiðara verður það. Það er staðan sem við erum í núna.“ Liverpool var með 25 stiga forskot á toppi deildarinnar þegar deildin var sett á ís en óvíst er hvenær deildin fer aftur af stað og með hvaða móti.
Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Sjá meira