Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Sindri Sverrisson skrifar 7. október 2026 10:32 Cole Campbell í sínum fyrsta A-landsleik fyrir Bandaríkin. Liðið vann Kanada 1-0 í vináttulandsleik. Getty/Omar Vega Fótboltamaðurinn ungi Cole Campbell fékk draum sinn uppfylltan í nótt þegar hann spilaði í fyrsta sinn með bandaríska A-landsliðinu í fótbolta í 1-0 sigri gegn Kanada á Allianz Field í Minnesota.
Campbell er fæddur og uppalinn í Bandaríkjunum en á íslenska móður, fótboltakonuna fyrrverandi Rakel Björk Ögmundsdóttur, og heimsótti Ísland reglulega. Hann náði svo að spila fyrir FH og Breiðablik hér á landi áður en hann hélt í atvinnumennsku til Þýskalands aðeins sextán ára gamall, til stórliðs Dortmund. Campbell hefur líkt og mamma sín klæðst íslensku landsliðstreyjunni því hann á að baki sjö leiki og tvö mörk fyrir yngri landslið Íslands. Hann kaus svo að spila frekar fyrir Bandaríkin og hefur nú leikið sinn fyrsta A-landsleik. Leikurinn við Kanada var að vísu bara vináttulandsleikur og samkvæmt reglum FIFA gæti Campbell enn snúist hugur og spilað fyrir Ísland en hann hefur sjálfur sagst kjósa frekar Bandaríkin og viðbrögðin eftir leik undirstrikuðu það. The First Cap for Cole Campbell! ☝️ https://t.co/pFGgf7Ldh7— U.S. Soccer Men's National Team (@USMNT) October 7, 2026 „Það er draumur að rætast. Algjörlega stórkostleg tilfinning að spila fyrsta leik fyrir mitt land. Takk allir fyrir stuðninginn. Þetta hefur verið alveg stórkostlegt,“ sagði Campbell á samfélagsmiðlum bandaríska landsliðsins. Í ágúst sagði hann í viðtali: „Ég hef þegar ákveðið að skipta yfir til Bandaríkjanna. Það eru margar ólíkar ástæður fyrir því en framtíð mín er með Bandaríkjunum. Að því sögðu þá eru engir bakþankar. Þetta er ritað í stein.“ Samkvæmt einkunnagjöf ESPN var Campbell varfærinn í leiknum í nótt en skilaði nokkrum sendingum á þeim tíma sem Mauricio Pochettino skammtaði honum en Campbell lék tæpan hálftíma. 20-year-old Cole Campbell is all smiles with Mauricio Pochettino ahead of making his USMNT debut 🥹 What it means ❤️ https://t.co/afy1p1hiVa— USMNT Only (@usmntonly) October 7, 2026 Goal.com segir að Campbell hefði eflaust verið búinn að spila fyrr í þessari landsleikjatörn en að minni háttar meiðsli hefðu komið í veg fyrir það. Miðillinn sagði hann ekki hafa náð að sýna sömu takta og í upphafi leiktíðar með Elversberg í Þýskalandi, þar sem hann hefur þegar skorað eitt deildarmark í fjórum leikjum, en að mikilvægast væri að hann væri núna búinn að þreyta frumraun sína fyrir landsliðið. Justin Ellis skoraði sigurmark Bandaríkjanna í nótt á 29. mínútu.
Fótbolti Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira