Móðir piparsveinsins bálreið Stefán Árni Pálsson skrifar 12. mars 2020 09:28 Barbara Weber var viðstödd í sjónvarpssal í lokaþættinum. skjáskot
Þættirnir The Bachelor njóta sífellt meiri vinsælda um heim allan og sérstaklega í Bandaríkjunum þar sem það er í raun að verða að trúarbrögðum að fylgjast náið með þáttunum. Í vikunni kláraðist 24. þáttaröðin og gaf Peter Weber út síðustu rósina og það má með sanni segja að lokaþættirnir tveir hafi vakið mikla athygli. Jimmy Kimmel gerði upp lokaþættina í spjallþætti sínum og má sjá það innslag neðar í fréttinni. Höskuldarviðvörun:Þeir sem hafa ekki horf á nýjustu þáttaröðina af The Bachelor og vilja alls ekki vita hvaða konu Peter valdi þurfa að hætta að lesa strax. . . . . . Það er búið að vara þig við. . . . . . . Undir lokin var Peter í raun ástfanginn af tveimur konur, þeim Hannah Ann Sluss og Madison Prewett. Áhorfendur sáu líklega að hann var ívið ástfangnari af Madison en samband þeirra hafði gengið erfilega undir lokin. Ástæðan fyrir því er að Madison er mjög trúuð kona og hefur aldrei stundað kynlíf. Hún er að spara sig fyrir hjónaband og hafði tilkynnt Peter í þáttunum að hún myndi eiga í erfileikum með að fyrirgefa honum ef Peter myndi stunda kynlíf með annarri konu í þáttunum. Það aftur á móti gerðist og í kjölfarið sá Madison sig knúna til að yfirgefa þættina þegar aðeins tvær konur voru eftir. Peter tók því ákvörðun um að velja Hannah Ann Sluss og fór á skeljarnar. Peter „valdi“ því Hannah Ann eins og móðir hans Barbara Weber hafði í raun pressað á hann að gera. Undir lok þáttaraðarinnar voru þátttakendur staddir í Ástralíu og eftir að Peter hafði beðið Hannah Ann fór parið því næst til Bandaríkjanna. Í lokaþættinum á þriðjudagskvöldið í beinni útsendingu á ABC var síðan sýnt frá því hvað gerðist í framhaldinu. Í ljós kom að Peter var enn yfirsig ástfanginn af Madison og treysti sér ekki til að halda áfram sambandi sínu með Hannah Ann og tóku þau sameiginlega ákvörðun um að hætta saman og má segja að Hannah Ann hafi verið allt annað en sátt með framvindum mála. Þáttastjórnandinn Chris Harrison flaug í kjölfarið til Auburn í Alabama þar sem Madison er búsett og tilkynnti henni að búið væri að slíta trúlofun Hannah Ann og Peter Weber. Madison hafði greinilega séð mikið eftir sinni ákvörðun og var tilbúin að hitta Peter og sjá hvað myndi síðan gerast í framhaldinu. Þau hittust og féllust í faðma í lokaþættinum og voru ákveðin í því að reyna á þeirra ástarsamband. Í beinni útsendingu á ABC fékk Peter bæði að hitta Hannah Ann og Madison. Hannah hreinlega las yfir honum í sófanum og var allt annað en sátt. Móðir Peter var stödd í salnum og sást greinilega að hún var með Hannah Ann í liði og klappaði ítrekað fyrir henni. Því næst kom Madison á sviðið og settist í sófann og kom þá í ljós að hún og Peter voru tilbúin að reyna á sambandið og sjá síðan til hvað myndi gerast. Barbara Weber var allt annað en sátt með þá ákvörðun og talaði mikið um að þau pössuðu ekki saman og var hún í raun bálreið. Barbara Weber, móðir Peter, sagði síðan undir lokin að hún þyrfti bara að sætta sig við að fólk þyrfti að misstíga sig til að finna ástina að lokum og gaf parinu sannarlega ekki sína blessun. Morgunþátturinn Good Morning America fjallaði um málið og má sjá þá samantekt hér að neðan. Svona var samtal Madison og Peter Weber í lokaþættinum.
Hollywood Tengdar fréttir Grét þegar hún las upp viðbjóðsleg skilaboð til keppenda í The Bachelor Nú fer að styttast í endalok 24. þáttaraðarinnar í The Bachelor og á Peter Weber eftir að velja sér eiginkonu en valið stendur á milli tveggja kvenna. 4. mars 2020 11:30 Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira
Grét þegar hún las upp viðbjóðsleg skilaboð til keppenda í The Bachelor Nú fer að styttast í endalok 24. þáttaraðarinnar í The Bachelor og á Peter Weber eftir að velja sér eiginkonu en valið stendur á milli tveggja kvenna. 4. mars 2020 11:30