Etur kappi við Obama og Reynolds Heimildarmyndin Um tímann og vatnið, sem byggir á samnefndri bók eftir Andra Snæ Magnason, hefur verið tilnefnd til tveggja verðlauna á Jackson Wild-verðlaunahátíðinni sem hefur verið lýst sem Óskarsverðlaunum náttúrulífsmynda. Andri Snær er tilnefndur í flokki þula og etur þar kappi við Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Hollywood-stjörnuna Ryan Reynolds. Bíó og sjónvarp 21.8.2026 15:03
Bautista hleypur í skarðið Leikarinn Dave Bautista hefur verið ráðinn til að leika stríðsguðinn Kratos í sjónvarpsþáttum byggðum á tölvuleiknum God of War eftir að Ryan Hurst, sem átti upphaflega að fara með hlutverkið, slasaðist alvarlega í tökum. Bautista mun þar leika á móti Ólafi Darra Ólafssyni í hlutverki þrumuguðsins Þórs. Bíó og sjónvarp 21.8.2026 14:04
Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Lögmaður Brian Hickerson, kærasta bandarísku leikkonunnar Hayden Panettiere, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna andláts Panettiere. Þetta er í fyrsta sinn Hickerson eða lögmaður hans tjá sig opinberlega eftir að Panettiere fannst látin síðastliðinn sunnudag. Lífið 21.8.2026 07:50
Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent 21.8.2026 07:27
Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Vladimir Klitschko, barnsfaðir leikkonunnar Hayden Panettiere, segir fjölskylduna í mikilli sorg. Panettiere hafi yfirgefið þessa jörð allt of snemma og að þó svo að þau hafi ekki verið saman hafi hún verið mikilvægur hluti lífs hans og móðir dóttur þeirra, Kayu. Hann biður um frið til að glíma við sorgina og andlát hennar. Lífið 18. ágúst 2026 08:24
Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lögreglufulltrúar í Greenville í Suður-Karólínufylki í Bandaríkjunum voru sendir að fjölbýlishúsi þar sem leikkonan Hayden Panettiere dvaldi í gær eftir að þeim barst tilkynning um meðvitundarlausa konu. Ekki liggur fyrir hvað dró hina 36 ára gömlu Panettiere til dauða en það virðist á öllu sem andlátið hafi ekki borið að með saknæmum hætti. Hún var úrskurðuð látin á vettvangi. Lífið 17. ágúst 2026 20:55
Nicole er fyrir norðan Síðustu daga og vikur hafa fjölmargar stórstjörnur lagt leið sína til landsins en meðal þeirra er ástralsk-bandaríska leikkonan Nicole Kidman. Hún er stödd í sólinni á Akureyri ef marka má Instagram-færslu í hringrás hennar. Lífið 17. ágúst 2026 19:05
Bestu hlutverk Hayden Panettiere Leikkonan Hayden Panettiere er látin, 36 ára að aldri, en hún var sannkölluð barnastjarna. Panettiere byrjaði að leika í auglýsingum aðeins ellefu mánaða gömul, sjónvarpsþáttum fjögurra ára og kvikmyndum níu ára. Leiklistarferill hennar spannaði því rúm þrjátíu ár og nánast alla hennar ævi. Vísir hefur tekið saman tíu bestu hlutverk hennar. Bíó og sjónvarp 17. ágúst 2026 13:48
Leikkonan Hayden Panettiere er látin Leikkonan Hayden Panettiere er látin. Hún var 36 ára gömul. Panettiere var þekktust fyrir hlutverk sín í sjónvarpsþáttunum Heroes og Nashville og fyrir kvikmyndirnar Scream 4 og Scream 6. Lífið 17. ágúst 2026 06:27
Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Adam Driver er formlega orðinn hluti af Marvel-heiminum en hann mun leika illmennið Mr. Sinister í nýrri kvikmynd um ofurhetjurnar X-Men. Fleiri þekktir leikarar á við Kit Connor og Saide Sink bætast í hópinn. Lífið 15. ágúst 2026 13:34
Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Barbie var aðsóknarmesta mynd ársins 2023, tilnefnd til fjölmargra verðlauna og olli hálfgerðu Barbie-æði. Fljótlega eftir frumsýninguna hófust viðræður um gerð framhaldsmyndar. Nú þremur árum síðar er Barbie 2 í lausu lofti vegna hárra launakrafa leikstjórans Gretu Gerwig, handritshöfundarins Noah Baumbach og stjarnanna Margot Robbie og Ryan Gosling. Lífið 14. ágúst 2026 16:15
„Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Skoski leikarinn Jack Lowden er „sterklega orðaður“ við hlutverk næsta James Bond í spæjaraseríunni vinsælu. Lowden þykir líklegastur af þeim leikurum sem hafa verið orðaðir við hlutverkið og er efstur á blaði hjá veðbönkum. Bíó og sjónvarp 14. ágúst 2026 14:05
Robbie Williams einhverfur Breski popparinn Robbie Williams segist nýlega hafa verið greindur með einhverfu. Hann fagnar greiningunni, segir hana útskýra margt í lífi sínu og noti hana reglulega sem afsökun í félagslegum aðstæðum. Williams hefður áður opnað sig um ADHD-greiningu sína, þunglyndi, víðáttufælni, vímuefnaneyslu og slæma líkamsímynd. Lífið 14. ágúst 2026 11:13
Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hollywood-leikarinn Jon Hamm, sem flestir þekkja úr þáttunum Mad Men, og leikkonan Anna Osceola eiga von á sínu fyrsta barni saman. Sautján ár skilja hjónin að, hún er 38 en hann 55 ára. Lífið 14. ágúst 2026 10:01
Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Leikkonan Nicole Kidman segir síðasta ár lífs síns hafa verið erfitt en hún skildi við kántrístjörnuna Keith Urban í september síðastliðnum. Það hafi engu breytt að hafa skilið einu sinni áður og upplifunin væri alveg jafn ný fyrir henni. Hún giftist Tom Cruise þegar hún var 23 ára gömul og man varla hvernig lífið var fyrir frægðina. Lífið 13. ágúst 2026 16:20
Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Ákærukviðdómur hefur gefið út ákærur á hendur Nick Reiner, sem er sakaður um að hafa myrt foreldra sína, leikstjórann dáða Rob Reiner og eiginkonu hans Michele Singer Reiner. Í ákærunni segir að Nick hafi setið fyrir foreldrum sínum nóttina sem hann myrti þau. Erlent 13. ágúst 2026 12:02
Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Móðir stjörnubloggarans Perezar Hilton hefur sótt um tímabundna forsjá yfir þremur börnum hans eftir að hann var lagður inn á spítala í kjölfar þess að skaða sjálfan sig í beinu streymi á TikTok. Hilton á þrjú ættleidd börn á aldrinum átta til þrettán ára. Lífið 12. ágúst 2026 13:59
Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Lucy Davis, sem er hvað þekktust fyrir að leika Dawn Tinsley, ritara í bresku Office, er með ólæknandi krabbamein. Þessu greindi leikkonan, sem er 53 ára gömul, frá í færslu á Instagram í dag og sagðist hún reyna að lifa sínu besta lífi á meðan hún getur það. Lífið 11. ágúst 2026 20:06
Usher þvertekur fyrir klónið Tónlistarmaðurinn Usher segist alls ekki hafa ráðið tvífara eða hannað klón af sjálfum sér til að stíga á svið á tónleikum hans á dögunum. Ásakanirnar fóru á flug á samfélagsmiðlum eftir að tónleikagestur birti myndband af flutningi hans og fjölmargir skrifuðu undir að þetta gæti ómögulega verið Usher. Lífið 11. ágúst 2026 14:31
Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Hollywood-stjarnan Brad Pitt segist byrjaður að drekka áfengi á ný eftir að hafa verið edrú síðustu sjö ár. Hann nýtti sér tólf spora kerfið í kjölfar skilnaðar við leikkonuna Angelinu Jolie fyrir um tíu árum og hefur reglulega talað opinberlega um edrúmennskuna. Hann reyni að gæta hófs í drykkjunni. Lífið 11. ágúst 2026 11:13
Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Nýjasta kvikmyndin um Köngulóarmannin, Spider-Man: Brand New Day, heldur áfram sigurgöngu sinni, hefur halað inn 1,6 milljarði dala og stefnir hraðbyri á að verða ein af aðsóknarmestu myndum sögunnar. Ódysseifur Christophers Nolan er sömuleiðis enn á siglingu, fór um helgina yfir milljarð dala-múrinn og er orðin aðsóknarmesta mynd leikstjórans frá upphafi. Bíó og sjónvarp 10. ágúst 2026 14:46
Ben Jones er látinn Ben Jones, leikari og fyrrverandi þingmaður Demókrata, er látinn, 84 ára að aldri. Jones var þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Cooter Davenport í sjónvarpsþáttunum Dukes of Hazzard en var einnig þingmaður í fjögur ár í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Bíó og sjónvarp 10. ágúst 2026 12:11
Aubrey Plaza orðin mamma Grínistinn og leikkonan Aubrey Plaza er orðin móðir. Hún eignaðist frumburð sinn, litla stúlku, í lok júlí með leikaranum Christopher Abbott. Lífið 10. ágúst 2026 12:05
Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Breska tónlistarbomban Raye virðist hafa fundið ástina í örmum leikarans Michael B. Jordan. Þau skelltu sér saman í rússíbanagarð í Los Angeles um helgina og virtust sannarlega njóta samveru hvors annars. Lífið 10. ágúst 2026 10:35
Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Fjölskylda stjörnubloggarans Perez Hilton hefur greint frá því að hann þurfi að gangast undir aðgerð eftir að hafa „misst mikið blóð“ í beinni útsendingu þann 4. ágúst þar sem hann skaðaði sjálfan sig í beinni á samfélagsmiðlinum TikTok. Lífið 9. ágúst 2026 15:12